Advania á Íslandi hlýtur eftirsótta viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur

Report this content

Advania hlaut á dögunum eftirsótta viðurkenningu frá alþjóðlega hug- og vélbúnaðarrisanum NCR fyrir afburða árangur og gæði í starfi. Verðlaunin nefnast "Partner Award for Excellence" og voru þau afhent á árlegri ráðstefnu í Barcelona, þangað sem NCR hafði stefnt alþjóðlegum samstarfsaðilum sínum. 

Ívar Logi Sigurbergsson sölustjóri hjá Advania og Daði Snær Skúlason vörustjóri hjá Advania veittu viðurkenningunni móttöku.

NCR hefur verið leiðandi í þjónustu við banka og smásölufyrirtæki síðan 1884 og veitir þjónustu í yfir 120 löndum. Fyrirtækið hefur þróað hugbúnaðarlausnir og sölu- og afgreiðslubúnað af ýmsu tagi og daglega fara um 700 milljón færslur gegnum lausnir frá NCR. Vél- og hugbúnaður frá NCR hefur verið notaður á Íslandi í rúm 30 ár við góðan orðstír hjá stærstu bönkum, verslunar- og þjónustufyrirtækjum landsins.

Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi:

„Þessi verðlaun eru sérstaklega gleðileg, enda eru þau ekki eingöngu veitt fyrir sölu umfram markmið heldur eru þau eingöngu veitt þeim samstarfsaðilum NCR sem hafa sýnt fram á yfirburða þekkingu á lausnum og þjónustu félagsins. Samstarf okkar við NCR hefur gengið ótrúlega vel og ótal viðskiptavinir Advania á Íslandi hafa notið ávinningsins af því samstarfi.

Nánari upplýsingar veitir:

Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, í síma +354 864 9841 eða í gegnum tölvupóstfangið aegir.thorisson@advania.is

Um Advania

Advania þjónustar þúsundir fyrirtækja og stofnana á Norðurlöndum og býður fjölbreytta þjónustu og upplýsingatæknilausnir. Okkar markmið er að hjálpa viðskiptavinum okkar að einfalda uppbyggingu og rekstur tölvukerfa, auka skilvirkni í þeirra rekstri og draga úr kostnaði þeirra. Advania bregst hratt við þörfum viðskiptavina sinna og hefur haldið þeim eiginleika þrátt fyrir verulegan vöxt á undanförnum árum. Við leggjum áherslu á sérfræðingar sem þjónusta viðskiptavini hafi fullt vald til að taka ákvarðanir með hagsmuni viðskiptavinarins að leiðarljósi. Okkar markmið er að viðskiptavinir Advania bæti sinn árangur með hjálp upplýsingatækninnar.

Tags:

Media

Media

Documents & Links