Framvinduskýrsla Aðgerðaáætlunar OR og eigenda H1 2012

Orkuveita Reykjavíkur
Fyrirtækjafréttir

Framvinduskýrsla Aðgerðaáætlunar OR og eigenda H1 2012

Reykjavík, 2012-09-13 01:11 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Aðgerðaáætlun Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) og eigenda (Planið) var kynnt 29. mars 2011. Í Planinu felast
margháttaðar aðgerðir með það heildarmarkmið að bæta sjóðstreymi OR um 50
milljarða króna til ársloka 2016. 


Árangur aðgerðanna eftir fyrri helming árs 2012 er umfram áætlun.


Heildarárangur 2012 H1 er um 874 mkr. umfram markmið tímabilsins. Samdráttur
fjárfestinga í veitukerfum er verulega umfram áætlanir en sala eigna á H1 2012
var undir áætlun. Hlutur OR í HS Veitum er í opinberu söluferli. 


Áhrif ytri breyta eru jákvæð sem nemur 329 mkr. á tímabilinu. Nettó niðurstaða
Plansins er því jákvæð sem nemur 1.203 mkr. fyrir 2012 H1. 


Í viðhengi er skýrsla OR um framvindu Plansins H1 2012.


         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 7707

Orkuveita Reykjavíkur

Related documents

 
 
 
 
Social Media Pitch:
Framvinduskýrsla Aðgerðaáætlunar OR og eigenda H1 2012