Össur Hf : Ársfjórðungsuppgjör 2016 - hádegisverðarfundur 22. júlí kl.12:00

Report this content

Tilkynning frá Össuri hf. no: 68/2016

Össur hf. birtir annað ársfjórðungsuppgjör ársins eftir lokun markaða fimmtudaginn 21. júlí 2016.

Símafundur föstudaginn 22. júlí kl. 7:00
Símafundur verður haldinn föstudaginn 22. júlí kl. 7:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, munu kynna niðurstöður annars ársfjórðungs. Fundurinn fer fram á ensku. Innhringinúmer á símafundinn er 800-7417. Hægt er að fylgjast með kynningunni á heimasíðu Össurar: www.ossur.com/investors

Hádegisverðarfundur föstudaginn 22. júlí kl. 12:00
Hádegisverðarfundur verður haldinn á Íslandi þann 22. júlí kl. 12:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, mun kynna niðurstöður annars ársfjórðungs. Hádegisverðarfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi 5 á 4. hæð. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið ir@ossur.com.

Gögn sem tengjast uppgjörinu verða birt á vefsíðu Össurar: www.ossur.com/investors

HUG#2027561

Subscribe