Tilkynning um fyrirhugaða hækkun hlutafjár í Össuri hf.

Report this content
- Fagfjárfestaútboð hefst í dag 

Stjórn Össurar hf. samþykkti á stjórnarfundi 29.október 2007 að hækka hlutafé
félagsins með útboði á nýjum hlutum, sem nema allt að 10% af heildarhlutafé
félagsins, til takmarkaðs hóps fagfjárfesta. Í kjölfarið mun Össur óska eftir
því að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta í OMX Norrænu kauphöllinni
Íslandi (OMXI). 

Tilgangur útboðsins er að styrkja eiginfjárgrunn félagsins og breikka
hlutahafahópinn. 

Kaupþing banki hf. (Kaupþing) hefur umsjón með útboðinu. 
Samantekt á útboðinu
•  Útboð nýrra hluta til takmarkaðs hóps fagfjárfesta. 
•  Össur hyggst gefa út allt að 38.059.553 nýjum hlutum, sem nema tæplega 10% af
   heildarhlutafé félagsins. 
•  Hlutabréfamiðlun Kaupþings mun taka við áskriftum í dag, 30. október 2007,
   og til kl. 6 síðdegis á morgun, 31. október 2007. Kaupþing og Össur áskilja
   sér hins vegar rétt til að loka útboðinu fyrr ef um umframáskrift verður að
   ræða. 
•  Össur mun, í samráði við Kaupþing, úthluta nýjum hlutum og áskilur sér rétt
   til þess að hafna einstökum áskriftum, að hluta til eða öllu leyti. 
•  Tilkynnt verður um niðurstöður útboðsins eigi síðar en kl. 8 síðdegis
   miðvikudaginn 31. október 2007. 
•  Fjárfestar skulu greiða kaupverð nýju hlutanna eigi síðar en kl. 4 síðdegis
   miðvikudaginn 7. nóvember 2007. 
•  Stjórn Össurar mun nýta heimild til hlutafjárhækkunar sem veitt var á
   aðalfundi félagsins 24. febrúar 2006, þar sem hluthafarnir féllu frá
   forgangsrétti að þessum nýju hlutum 
•  Verð nýju hlutanna verður á bilinu 101-103 krónur á hlut.
•  Gert er ráð fyrir að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta í OMXI eigi
   síðar en mánudaginn 12. nóvember 2007. 

Nánari upplýsingar veita: 

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, í síma +354-515-1300 
Þórólfur Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings, í síma
+354-444-6000 
Frosti Reyr Rúnarsson, forstöðumaður hlutabréfamiðlunar Kaupþings, í síma
+354-444-6000

Subscribe