Við hjá Baseload Power á Íslandi tilkynnum með ánægju að barnabókin Okkar dulda orka kemur nú út í íslenskri útgáfu

Report this content

Okkar dulda orka fjallar um vinina Sæ, Blæ, Sunnu, Berg og Glóð, mikilvægi endurnýjanlegrar orku, samvinnu í þágu jarðarinnar – og síðast en ekki síst um það að vera vinur í raun.

 

Bókin hvetur lesendur til að uppgötva sína eigin leyndu krafta og kemur því til skila hversu miklu sé hægt að áorka með samvinnu og koma jörðinni í betra jafnvægi. Bókin hæfir börnum á öllum aldri sem vilja fræðast um endurnýjanlega orku.

 

Okkar dulda orka var fyrst gefin út í Svíþjóð árið 2023 á vegum Baseload Capital, fjárfestingafélags í jarðhita, og hefur þegar selst í rúmlega 8000 eintökum. Hún hefur verið fáanleg á ýmsum tungumálum; ensku, sænsku, kínversku, úkraínsku og nú einnig á íslensku í samstarfi við Samorku, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi.

 

Baseload Capital ýtti útgáfu bókarinnar úr vör sem vitundarvakningu á heimsvísu um mikilvægi jarðhitans. Á sama tíma er hún hönnuð til að veita kennurum jafnt sem foreldrum, ömmum, öfum og öllum uppalendum einstakt tækifæri til að ræða við börn á skemmtilegan og upplýsandi hátt um mikilvægi orkunnar í daglegu lífi, sem og um hvaðan endurnýjanleg orka kemur.

 

Útgáfudagur bókarinnar er 13. febrúar 2025 og verður hún fáanleg í völdum verslunum Pennans Eymundsson og Forlagsins.

 

Marta Rós Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Baseload Power á Íslandi, segir um útgáfu bókarinnar hérlendis: „Bókin veitir skemmtilegt tækifæri til að kynna fyrir börnunum okkar hvernig mismunandi uppsprettur endurnýjanlegrar orku geta unnið saman til að knýja áfram og styðja við samfélag nútímans. Bókin mætir þannig mikilvægri þörf fyrir áhrifaríkt, auðlæsilegt og fræðandi barnaefni um hlutverkið sem orkuauðlindir spila í daglegu lífi okkar. Ég vona að bókin þjóni sem vitundarvakning um eðli og gildi endurnýjanlegrar orku, veki upp ábyrgðartilfinningu hjá lesendum og verði þeim hvatning til að fara vel með verðmætu orkuauðlindirnar okkar, nú og til framtíðar.“

 

Tengiliður vegna sölu bókar:

Hjörleifur þór Steingrímsson

hjorleifur.steingrimsson@baseloadpower.is

659 6243

 

Fyrir fyrirspurnir frá fjölmiðlum:

Marta Rós Karlsdóttir, framkvæmdastjóri BPI

marta.karlsdottir@baseloadpower.is

617 2740

 

About Baseload

We lead partnerships to scale up geothermal energy: a 24/7 available source of clean power and heat. Our global portfolio de-risks investments, expands the market and accelerates lessons learned in collaboration with strong owners and partners.

Our parent company Baseload Capital invests in geothermal projects worldwide. Our subsidiaries, the Baseload Power companies, build, commission and operate geothermal heat and power plants funded by Baseload Capital.

Subscribe

Media

Media

Quotes

Bókin veitir skemmtilegt tækifæri til að kynna fyrir börnunum okkar hvernig mismunandi uppsprettur endurnýjanlegrar orku geta unnið saman til að knýja áfram og styðja við samfélag nútímans. Bókin mætir þannig mikilvægri þörf fyrir áhrifaríkt, auðlæsilegt og fræðandi barnaefni um hlutverkið sem orkuauðlindir spila í daglegu lífi okkar. Ég vona að bókin þjóni sem vitundarvakning um eðli og gildi endurnýjanlegrar orku, veki upp ábyrgðartilfinningu hjá lesendum og verði þeim hvatning til að fara vel með verðmætu orkuauðlindirnar okkar, nú og til framtíðar.
Marta Rós Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Baseload Power á Íslandi