- 3 mánaða uppgjör 2007

Report this content
Helstu niðurstöður fyrsta ársfjórðungs

• Sala var 80,4 milljónir Bandaríkjadala (5,5 milljarðar íslenskra króna*), jókst um 34% frá fyrsta fjórðungi 2006

• Söluaukning vegna innri vaxtar var 4% 

• Pro forma söluaukning var 7%

• Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 10,2 milljónir dala (698 milljónir íslenskra króna*), jókst um 19% frá fyrsta fjórðungi 2006

• EBITDA hlutfall var 12,7%, lækkar úr 14,3% fyrir sama tímabil í fyrra

• Tap tímabilsins var 2,7 milljónir Bandaríkjadala (184 milljónir íslenskra króna*) samanborið við 571 þúsund Bandaríkjadala hagnað á fyrsta fjórðungi 2006.



Jón Sigurðsson, forstjóri:

“Við hófum umfangsmikla endurskipulagningu á sölukerfi okkar í Ameríku í febrúar. Verkefnið er liður í lokaáfanga  samþættingar á stuðningstækjafyrirtækjunum sem við höfum keypt í norður Ameríku. Þetta kemur niður á söluvexti og rekstrarniðurstöðum til skemmri tíma litið, en sé litið til lengri tíma munu breytingarnar hafa verulega jákvæð áhrif. Það eru krefjandi tímar framundan en við sjáum nú fyrir endan á þessu tímabili og hlökkum til þess að uppskera árangurinn. Í Evrópu sjáum við hægan viðsnúning; niðurstöður eru sérlega ánægjulegar í Bretlandi og í Þýskalandi.”


        
 * Samkvæmt reikningsskilareglum miðast umreikningur rekstrarliða milli gjaldmiðla við meðalgengi rekstrartímabils. Við umreikning úr Bandaríkjadölum yfir í íslenskar krónur fyrir fyrsta ársfjórðung er notað meðalgengi 68,13 ISK/USD. Við umreikning efnahagsliða er notað gengi í lok ársfjórðungsins 65,85 ISK/USD.