Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn í höfuðstöðum félagsins að
Grjóthálsi 5, 110 Reykjavík, föstudaginn 20. febrúar 2009 og hefst
hann kl. 8:30.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samþykktum
félagsins.
1. Tillaga um að heimila stjórn að kaupa eigin bréf félagsins.
1. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt
skýrslu endurskoðenda, mun vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins að Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir aðalfund.
Reikningar og önnur gögn verða einnig birt á heimasíðu félagsins sem
er www.ossur.com.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað frá kl. 8:15 Hluthafar eru hvattir til að mæta tímanlega
til að taka við fundargögnum. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30
Upplýsingar um þá sem eru í kjöri til stjórnar er í meðfylgjandi
viðhengi.
Reykjavík 5. febrúar 2009
Stjórn Össurar hf.