Leiðrétting: röng dagsetning í fyrri tilkynningu - Nýr samningur um
viðskiptavakt við Nýja Kaupþing
Fréttatilkynning frá Össuri hf.
12. nóvember 2009, GMT: 17:05
Nýr samningur um viðskiptavakt við Nýja Kaupþing
Össur hf. hefur gert nýjan samning við Nýja Kaupþing Banka hf. um
viðskiptavakt sem er endurnýjun á fyrri samningi frá febrúar 2005.
Þessi samningur er einungis vegna skráningar félagsins á Íslandi.
Samkvæmt samningnum mun Nýja Kaupþing sjá um markaðsvakt á bréfum
félagsins á NASDAQ OMX á Íslandi. Nýja Kaupþing mun setja fram kaup-
og sölutilboð alla viðskiptadaga í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á
Íslandi. Upphæð hvers tilboðs skal að lágmarki vera 20.000 hlutir á
gengi sem Nýja Kaupþing ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur milli
kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 2,0% og breyting frá síðasta
verði skal ekki vera meira en 3,5%. Nýja Kaupþing ber skyldu til að
bjóða allt að 100.000 hluti á hverjum viðskiptadegi.
Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í
kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi og stuðla að skilvirkri og gegnsærri
verðmyndun á hlutabréfum félagsins.
Nánari upplýsingar veita:
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044