Leiðrétting: röng dagsetning í fyrri tilkynningu - Nýr samningur um
viðskiptavakt við Saga Capital
Fréttatilkynning frá Össuri hf.
12. nóvember 2009, GMT:17:00
Nýr samningur um viðskiptavakt við Saga Capital
Össur hf. hefur gert nýjan samning við Saga Capital Fjárfestingabanka
hf. um viðskiptavakt sem er endurnýjun á fyrri samningi frá apríl
2008. Þessi samningur er einungis vegna skráningar félagsins á
Íslandi.
Samkvæmt samningnum mun Saga Capital sjá um markaðsvakt á bréfum
félagsins á NASDAQ OMX á Íslandi. Saga Capital mun setja fram kaup-
og sölutilboð alla viðskiptadaga í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á
Íslandi. Upphæð hvers tilboðs skal að lágmarki vera 20.000 hlutir á
gengi sem Saga Capital ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur milli
kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 2,0% og breyting frá síðasta
verði skal ekki vera meira en 3,5%. Saga Capital ber skyldu til að
bjóða allt að 100.000 hluti á hverjum viðskiptadegi.
Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í
kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi og stuðla að skilvirkri og gegnsærri
verðmyndun á hlutabréfum félagsins.
Nánari upplýsingar veita:
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044