Niðurstöður í hlutafjárútboði Össurar.

Report this content

                        
Tilboðshluta í hlutafjárútboði Össurar lauk 17. september s.l. og voru tilboðin opnuð í húsnæði Kaupþings hf., Ármúla 13 að viðstöddum fulltrúum Össurar hf. og þeim tilboðsgjöfum sem þess óskuðu.<br>
<br>
Í boði voru 22,8 mkr. að nafnvirði. Alls bárust 229 tilboð að nafnvirði 69,3 mkr. frá 59 tilboðsgjöfum og hópum. Umfram eftirspurn var því ríflega þreföld. Hæsta tilboðið var 33, lægsta tilboðið sem var tekið var 29,53 meðalgengi þeirra tilboða sem tekið var var 31. Söluandvirði tilboðshlutans var 706,8 mkr.

Subscribe