Opinn fundur með stjórnendum Össurar hf. á Hótel Borg

Report this content
Opinn fundur með stjórnendum Össurar hf. á Hótel Borg – 
Gyllta salnum, fimmtudaginn 2. maí kl. 16:30
Í kjölfar birtingar á uppgöri Össurar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung hafa stjórnendur ákveðið að boða til fundar þar sem farið verður yfir  helstu niðurstöður uppgjörsins og fundargestum gefinn kostur á að ræða við stjórnendur.

Dagskrá

Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf., mun fara yfir helstu niðurstöður uppgjörs fyrsta ársfjórðungs.
Eyþór Bender forstöðumaður markaðs- og vörusviðs fjallar um vörur sem hafa verið markaðssettar á árinu 2002 og þær vörur sem eru væntanlegar á markað.  Eyþór mun einnig fjalla um þróunarstarf fyrirtækisins.
Jón Sigurðsson og Hjörleifur Pálsson fjármálastjóri munu svara spurningum fundargesta varðandi uppgjör fyrsta ársfjórðungs og annað sem viðkemur rekstri félagsins.



Vinsamlegast tilkynnið þáttöku til Sigurborgar Arnarsdóttur í síma 515-1339 eða á tölvupósti sarnarsdottir@ossur.com fyrir  kl.12:00 fimmtudaginn 2. maí nk.

Subscribe