Össur - Annar ársfjórðungur 2014
Meginatriði á öðrum ársfjórðungi 2014
* Hagnaður jókst um 106% milli ára. Hagnaðurinn nam 17 milljónum
Bandaríkjadala eða 13% af sölu, samanborið við 8 milljónir dala og 8% af
sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
* Sala nam 133 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 106 milljónir dala á
öðrum ársfjórðungi 2013. Söluvöxtur var 23%, þar af 3% innri vöxtur, hvort
tveggja mælt í staðbundinni mynt.
* Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 30% samanborið við annan
ársfjórðung 2013, þar af var innri vöxtur neikvæður um 1%, hvort tveggja
mælt í staðbundinni mynt.
* Sala á stoðtækjum jókst um 15% samanborið við annan ársfjórðung 2013, þar af
var innri vöxtur 8%, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
* Framlegð nam 85 milljónum Bandaríkjadala eða 64% af sölu, samanborið við 65
milljónir dala og 61% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
* EBITDA nam 29 milljónum Bandaríkjadala og EBITDA framlegð 22% af sölu,
samanborið við 15 milljónir dala og 14% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
* Handbært fé frá rekstri nam 25 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu,
samanborið við 11 milljónir dala og 11% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2014
Félagið hefur endurskoðað áætlun fyrir árið 2014 vegna mikils söluvaxtar í
stoðtækjum, aukinnar skilvirkni í rekstri og kaupa á tveimur litlum fyrirtækjum
á árinu. Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2014 er eftirfarandi:
* Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 16-18% (var áður 14-16%)
* Innri söluvöxtur á bilinu 3-4%, mælt í staðbundinni mynt (var áður 2-4%)
* EBITDA framlegð sem hlutfall af sölu á bilinu 19-20% (var áður 17-19%)
* Fjárfestingar (CAPEX) á bilinu 2,5-3,5% af sölu (óbreytt)
* Virkt skatthlutfall um 26% (óbreytt)
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Árangur okkar á fyrri helmingi ársins er einkar ánægjulegur. Árið fór vel af
stað og nú á öðrum ársfjórðungi skilum við methagnaði og áframhaldandi sterku
sjóðstreymi. Söluvöxtur í EMEA er áfram góður og árangur þeirra félaga sem við
höfum keypt undanfarið er í takti við okkar væntingar. Sala á stoðtækjum er mjög
góð og þá sérstaklega sala á hátæknivörum sem staðfestir velgengni okkar á þeim
vettvangi."
Símafundur og hádegisverðarfundur með markaðsaðilum föstudaginn 25. júlí 2014
Símafundur föstudaginn 25. júlí kl. 10:00
Símafundur verður haldinn með fjárfestum föstudaginn 25. júlí kl. 10:00 þar sem
Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, munu kynna
niðurstöður ársfjórðungsins. Innhringinúmer á símafundinn er 800-8660.
Hádegisverðarfundur föstudaginn 25. júlí kl. 12:00
Félagið býður jafnframt markaðsaðilum á Íslandi til hádegisverðarfundar þann
25. júlí kl. 12:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason,
fjármálastjóri munu kynna niðurstöður ársfjórðungsins. Hádegisverðarfundurinn
verður haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi 5, 4. hæð. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@ossur.com.