GÓÐUR SÖLUVÖXTUR
Sala - Söluvöxtur á árinu 2011 var góður eða 9%, mælt í staðbundinni mynt.
Heildarsalan nam 401 milljón Bandaríkjadala samanborið við 359 milljónir dala
árið 2010. Öll landsvæði og vörumarkaðir sýndu vöxt á árinu. Sala á spelkum og
stuðningsvörum var sérstaklega góð og skilaði 15% söluvexti, mælt í staðbundinni
mynt. Söluvöxtur í stoðtækjum var ágætur eða 4%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - EBITDA nam 76 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu. Framlegð nam
249 milljónum dala eða 62% af sölu og hagnaður nam 37 milljónum dala eða 9% af
sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Árið 2011 var enn eitt árið þar sem við sýndum góðan söluvöxt og arðsemi. Sem
fyrr var nýsköpun lykilþáttur í árangri okkar og öll landsvæði og vörumarkaðir
uxu. Einn stærsti áfangi okkar á árinu var opnun verksmiðjunnar í Mexíkó sem
eykur framleiðslugetu okkar og skapar ný tækifæri. Annar stór áfangi var þegar
við kynntum enn eina viðbótina við Bionic vörulínuna okkar, SYMBIONIC LEG, sem
er fyrsta vara sinnar tegundar í heiminum."
Helstu tíðindi ársins:
* Fjárfesting í stærra söluneti - Fjárfesting í stærra söluneti hefur verið
ein af aðalástæðum vaxtar á árinu. Í Bandaríkjunum hefur áherslan verið á
áframhaldandi fjárfestingu í sölu- og dreifineti sem hefur haft jákvæð áhrif
á sölu þar. Í Evrópu hefur aðaláherslan verið á Þýskaland og Frakkland. Í
Frakklandi er svo sérstök áhersla á að ná til lækna og annarra sem samþykkja
og velja vörur, jafnt spelkur og stuðningsvörur og vörur vegna
blóðrásarvanda.
* Framleiðsla í Mexíkó - Verksmiðja Össurar í Tijuana í Mexíkó var formlega
opnuð í september. Össur hóf uppbyggingu á verksmiðjunni ári fyrr og hefur
framleiðsla á nokkrum vörulínum verið flutt þangað frá Bandaríkjunum.
Verksmiðjan er nú þegar á meðal stærstu og mikilvægustu framleiðslueininga
Össurar og mögulegt verður að auka framleiðslugetuna á næstu árum til þess
að styðja við framtíðarvöxt félagsins. Þess er vænst að áætlaður sparnaður
vegna verksmiðunnar, um 4 milljónir Bandaríkjadala, komi fram árið 2012.
* Stöðugt framboð á nýjum vörum - Á árinu voru 25 nýjar vörur kynntar. Gott
jafnvægi hefur verið á milli nýrra vara í báðum vöruflokkum, þ.e. spelkum og
stuðningsvörum og stoðtækjum. Margar spennandi nýjungar í spelkum og
stuðningsvörum voru kynntar og í stoðtækjunum bar kynningin á SYMBIONIC LEG
hæst, en það er fyrsti gervifótur sinnar tegundar á markaðnum.
Áætlun 2012 - Fyrir árið 2012 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á
bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA, leiðrétt fyrir
einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu fyrir árið í
heild.
Símafundur á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 11:00
Á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar 2012 kl. 11.00, verður haldinn símafundur þar
sem farið verður yfir niðurstöður fjórða ársfjórðungs og ársins 2011 í heild.
Fundurinn hefst kl. 11:00 GMT / 12:00 CET. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson,
forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og
svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgjast með
honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors