Fjórði ársfjórðungur 2013
* Hagnaður og hagnaður á hlut jukust um 75% milli ára. Hagnaðurinn nam 14
milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 8 milljónir dala á fjórða
ársfjórðungi 2012.
* Sala nam 128 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 98 milljónir dala á
fjórða ársfjórðungi 2012. Söluvöxtur var 29%, þar af 7% innri vöxtur,
hvortveggja mælt í staðbundinni mynt.
* EBITDA jókst um 69% og nam 24 milljónum Bandaríkjadala og 19% af sölu,
samanborið við 14 milljónir dala og 15% af sölu á fjórða ársfjórðungi 2012.
Leiðrétt fyrir áhrifum af keyptum félögum var EBITDA 20% af sölu.
* Handbært fé frá rekstri jókst um 14% og nam 29 milljónum Bandaríkjadala.
Ársuppgjör 2013
* Hagnaður og hagnaður á hlut jukust um 8% milli ára. Hagnaðurinn nam 41
milljón Bandaríkjadala og 9% af sölu, samanborið við 38 milljónir dala og
9% af sölu 2012.
* Sala nam 436 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 399 milljónir dala
2012. Söluvöxtur var 9%, þar af 2% innri vöxtur, hvortveggja mælt í
staðbundinni mynt.
* Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 12%, þar af 2% innri vöxtur, hvort
tveggja mælt í staðbundinni mynt.
* Sala á stoðtækjum jókst um 6%, þar af 4% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í
staðbundinni mynt.
* Framlegð nam 270 milljónum Bandaríkjadala og 62% af sölu, samanborið við
248 milljónir Bandaríkjadala og 62% af sölu 2012.
* EBITDA framlegð nam 75 milljónum Bandaríkjadala og 17% af sölu, samanborið
við 70 milljónir dala og 18% af sölu 2012. Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði
og áhrifum af keyptum félögum var EBITDA 19% af sölu.
* Handbært fé frá rekstri er áfram sterkt og nam 73 milljónum Bandaríkjadala
og 17% af sölu, samanborið við 71 milljón dala og 18% af sölu 2012.
* Á árinu var gengið frá þremur fyrirtækjakaupum. Sala frá keyptum fyrirtækjum
nemur 26 milljónum dala 2013.
* Aðgerðir til að draga úr kostnaði sem vonu framkvæmdar á fyrri helmingi
ársins, skiluðu 5 milljónum Bandaríkjadala í sparnað 2013.
Áætlun 2014
Áætlun stjórnenda fyrir árið:
* Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 14-16%.
* Innri söluvöxtur á bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt.
* EBITDA sem hlutfall af veltu, á bilinu 17-19%.
* Fjárfestingar (CAPEX), á bilinu 2,5-3,5%.
* Virkt skatthlutfall í um 26%.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Síðasta fjórðungur ársins var mjög góður endir á árinu. Fjórði ársfjórðungur er
annar fjórðungurinn í röð þar sem við sjáum mjög góðan rekstrarhagnað og
áframhaldandi sterkt sjóðsstreymi. Aðhaldsaðgerðirnar sem við hófum á öðrum
ársfjórðungi hafa skilað tilætluðum árangri. Enn eitt árið sýnir EMEA mjög
góðan árangur og á Bandaríkjamarkaði sáum við merki um jákvæða þróun á seinni
hluta ársins. Eins og á undanfönum árum náðum við mjög góðum árangri í Asíu. Á
árinu styrktum við stöðu okkar og gengum frá kaupum á þremur fyrirtækjum."
Össur hf. Ársuppgjör 2013 - Hádegisverðarfundur með markaðsaðilum fimmtudaginn
6. febrúar
Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 11:00 verður símafundur með fjárfestum og kl.
12:00, í kjölfarið á símafundinum, býður félagið markaðsaðilum á Íslandi á
hádegisverðarfund þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri og Sveinn Sölvason,
fjármálastjóri munu fara yfir niðurstöður fjórða ársfjórðungs og ársins í heild.
Innhringinúmer fyrir símafund: 800-8660
Hádegisverðaarfundur 6. febrúar kl. 12:00
Staður: Össur hf, Grjótháls 5, 4. hæð