Össur - Dagskrá og tillögur lagðar fyrir aðalfund 24. febrúar nk.

Report this content
AÐALFUNDUR ÖSSURAR HF. 2006
HALDINN Á NORDICA HOTEL, SUÐURLANDSBRAUT 2, REYKJAVÍK,
FÖSTUDAGINN 24.FEBRÚAR 2006 KL. 8:15
Dagskrá:

1.	Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.

2.	Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar.

3.	Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.

4.	Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu.

5.	Tillaga til breytinga á 1. tl. Í gr. 5.01 í samþykktum félagsins sem felst í því að fækka stjórnarmönnum úr sjö í fimm.

6.	Kosning stjórnar skv. gr. 5.01 í samþykktum félagsins. 

7.	Kosning endurskoðenda skv. gr. 7.02 í samþykktum félagsins.

8.	Tillaga um heimild til stjórnar að kaupa eigin hlutabréf félagsins.

9.	Tillaga um heimild til stjórnar um að auka hlutafé félagsins um allt að 10% án forgangsréttar.

10.	Önnur mál, sem borin hafa verið löglega fram eða fundurinn samþykkt að taka til meðferðar.


Tillaga um þóknun til stjórnar Össurar hf. fyrir liðið starfsár, lögð fyrir aðalfund félagsins 24. febrúar 2006.

Lagt er til að stjórnarlaun fyrir liðið starfsár verði greidd í bandarískum dölum sem hér segir:

Laun stjórnarformanns verði USD 46.000

Laun varaformanns verði USD 28.000

Laun annarra stjórnarmanna verði USD 18.000  

Tillaga um ráðstöfun hagnaðar, lögð fyrir aðalfund Össurar hf.  24. febrúar 2006.

Lagt er til að hagnaður félagsins á rekstrarárinu 2005 verði fluttur til næsta árs.  

Tillaga um endurskoðanda Össurar hf. fyrir næsta starfsár, lögð fyrir aðalfund félagsins 24. febrúar 2006.

Lagt er til að endurskoðendafélagið Deloitte hf. verði kjörið endurskoðandi félagsins til næsta árs.  

Tillaga til breytinga á 1. tl. í gr. 5.01 í samþykktum félagsins, lögð fyrir aðalfund félagsins 24. febrúar 2006.

Lagt er til að gera breytingar á 1. tl í gr. 5.01 í samþykktum félagsins sem felur í sér að fækka stjórnarmönnum úr  sjö í fimm.

Tillaga um heimild til stjórnar Össurar hf. að kaupa eigin hlutabréf félagsins, lögð fyrir aðalfund félagsins 24. febrúar 2006.

Félaginu er heimilt, í samræmi við 55 gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995, að kaupa allt að 10% af eigin hlutafé á gengi sem sé ekki hærra en 10% yfir og ekki lægra en 10% undir skráðu meðalgengi bréfa félagsins á næstu tveimur vikum á undan kaupunum.  

Heimild þessi gildi í næstu 18 mánuði.   Eldri heimildir falla jafnframt niður.

Tillaga um heimild til stjórnar um að auka hlutafé félagsins, lögð fyrir aðalfund 24. febrúar 2006.

Lagt er til að stjórn félagsins fái heimild til að auka hlutafé félagsins um allt að 10% án forgangsréttar.





Subscribe