Össur - Fyrsti ársfjórðungur 2012
GÓÐUR SÖLUVÖXTUR
Sala - Söluvöxtur var góður eða 5%, mælt í staðbundinni mynt. Heildarsalan nam
100 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 97 milljónir dala á fyrsta
ársfjórðungi 2011. Öll landsvæði og vörumarkaðir sýndu vöxt. Sala á spelkum og
stuðningsvörum var hæg með 2% söluvöxt, mælt í staðbundinni mynt. Söluvöxtur í
stoðtækjum var góður eða 7%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - Hagnaður nam 10 milljónum dala eða 10% af sölu, sem er aukning um 22%
samanborið við fyrsta ársfjórðung 2011. EBITDA nam 18 milljónum Bandaríkjadala
eða 18% af sölu og framlegð nam 62 milljónum dala eða 62% af sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Söluvöxtur á fyrsta ársfjórðungi var góður og í takt við áætlun okkar fyrir
árið í heild. Eins og á undanförnum ársfjórðungum þá uxu öll landsvæði og
vörumarkaðir, þar sem Evrópa sýndi sérstaklega góðan árangur. Einn stærsti
áfangi okkar á síðasta ári var kynningin á SYMBIONIC LEG, enn einni viðbótinni
við Bionic vörulínuna okkar. Varan hefur fengið mjög góðar viðtökur á fyrsta
ársfjórðungi og höfum við fengið góð viðbrögð frá notendum."
Vörur - Nýsköpun er einn af lykilþáttunum í vexti félagsins. Á fjórðungnum voru
átta nýjar vörur og vörunýjungar kynntar. Á meðal þeirra var ný útgáfa af
Proprio Foot sem býður upp á breiðara úrval af stærðum og er einnig með hærri
þyngdartakmörk, sem stækkar þann hóp sem getur nýtt sér þessa mikilvægu vöru.
Áætlun 2012 - Fyrri áætlun fyrir árið 2012 er óbreytt. Stjórnendur gera ráð
fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA,
leiðrétt fyrir einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu
fyrir árið í heild.
Símafundur á morgun, miðvikudaginn 25. apríl, kl. 10:00
Á morgun, miðvikudaginn 25. apríl, verður haldinn símafundur þar sem farið
verður yfir niðurstöður ársfjórðungsins. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00
CET. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni
www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors