Össur - Fyrsti ársfjórðungur 2014
Fyrsti ársfjórðungur 2014
* Hagnaður jókst um 96% milli ára. Hagnaðurinn nam 11 milljónum Bandaríkjadala
og 9% af sölu, samanborið við 6 milljónir dala og 6% af sölu á fyrsta
ársfjórðungi 2013.
* Sala nam 121 milljón Bandaríkjadala, samanborið við 97 milljónir dala á sama
tímabili 2013. Söluvöxtur var 24%, þar af 6% innri vöxtur, hvortveggja mælt
í staðbundinni mynt.
* Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 28%, þar af 2% innri vöxtur, hvort
tveggja mælt í staðbundinni mynt.
* Sala á stoðtækjum jókst um 19%, þar af 12% innri vöxtur, hvort tveggja mælt
í staðbundinni mynt.
* Framlegð nam 76 milljónum Bandaríkjadala og 63% af sölu, samanborið við 60
milljónir Bandaríkjadala og 62% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013.
* EBITDA framlegð nam 20 milljónum Bandaríkjadala og 17% af sölu, samanborið
við 14 milljónir dala og 14% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013.
* Vegna árstíðabundinna sveiflna er handbært fé frá rekstri minnst á fyrsta
ársfjórðungi. Handbært fé frá rekstri nam 12 milljónum Bandaríkjadala og
10% af sölu, samanborið við 9 milljónir dala og 9% af sölu á sama tímabili
2013.
* 2. apríl 2014 var lánasamning félagsins breytt og hann framlengdur um þrjú
ár, eða fram til ársins 2019. Meðalvextir eru 105 bps + LIBOR/EURIBOR sem
breytist í takt við skuldsetningu félagsins. Samstarfsbankar Össurar eru
ING, Nordea og SEB.
Áætlun 2014
Áætlun stjórnenda fyrir árið:
* Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 14-16%.
* Innri söluvöxtur á bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt.
* EBITDA sem hlutfall af veltu, á bilinu 17-19% af sölu.
* Fjárfestingar (CAPEX), á bilinu 2,5-3,5% af sölu.
* Virkt skatthlutfall í um 26%.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Niðurstöður fyrsta ársfjórðungs eru í takt við okkar væntingar. Við sjáum enn
einn ársfjórðunginn þar sem arðsemin er mjög góð og rekstrarhagnaður tvöfaldast
á milli ára. Aðhaldsaðgerðir sem við fórum í á síðasta ári og endurhönnun á
ferlum hafa jákvæð áhrif, en einnig er ánægjulegt að sjá að markaðsskilyrði á
stoðtækjamarkaðnum í Bandaríkjunum er að þróast í rétta átt. Sölu vöxtur í EMEA
heldur áfram að vera stöðugur. Í byrjun april framlengdum við lánasamning
félagsins um þrjú ár, eða fram til ársins 2019 og endurspegla lánakjörin sterka
fjárhagslega stöðu Össurar og góðar framtíðarhorfur."
Össur hf. uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung - morgunverðarfundur með
markaðsaðilum föstudaginn 2. maí kl. 8:30
Miðvikudaginn 30. apríl kl. 10:00 verður símafundur með fjárfestum og á
föstudaginn 2. maí býður félagið markaðsaðilum á Íslandi á morgunverðarfund þar
sem Sveinn Sölvason, fjármálastjóri mun fara yfir niðurstöður fjórðungsins.
Símafundur 30. apríl kl.10:00
Innhringinúmer fyrir símafund: 800-8660
Morgunverðarfundur 2. maí kl. 8:30
Staður: Össur hf, Grjótháls 5, 4. hæð