Össur - Þriðji ársfjórðungur 2012
HÆG SALA Í BANDARÍKJUNUM HEFUR ÁHRIF Á VÖXT
Sala - Söluvöxtur var 2%, mælt í staðbundinni mynt. Heildarsalan nam 99
milljónum Bandaríkjadala samanborið við 101 milljón dala á þriðja ársfjórðungi
2011. Áframhaldandi eftirlit endurgreiðsluaðila hefur hægt á sölu á stoðtækjum í
Bandaríkjunum og hefur áfram áhrif á heildarsölu. Enginn söluvöxtur var í
stoðtækjum eða 0%, mælt í staðbundinni mynt en söluvöxtur í spelkum og
stuðningsvörum var 3%, mælt í staðbundinni mynt. Enn einn fjórðunginn sýnir
Össur í Asíu mjög góðan vöxt eða 24%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - Reksturinn gengur vel og sýnir góða arðsemi. Annan fjórðunginn í röð
vex sala á spelkum og stuðningsvörum á meðan sala á stoðtækjum dregst saman, sem
hefur neikvæð áhrif á framlegð. Þrátt fyrir breytta vörusamsetningu og minni
sölu helst framlegðarhlutfallið stöðugt sem staðfestir góðan árangur
framleiðslunnar í Mexíkó og jákvæð áhrif annarra verkefna innan
framleiðsludeildar. Framlegðin nam 61,7 milljónum Bandaríkjadala eða 63% af sölu
sem er sama hlutfall og á þriðja ársfjórðungi 2011.
EBITDA nam 18 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu, samanborið við 20% af
sölu á sama tímabili 2011. EBITDA er lægri vegna minni sölu og aukinnar
fjárfestingar í rannsóknar- og þróunarstarfi.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Niðurstöður þriðja ársfjórðungs eru undir okkar væntingum og hafa áhrif á
áætlun fyrir árið í heild. Eftirlit endurgreiðsluaðila í Bandaríkjunum hefur
haft meiri áhrif á söluna en stjórnendur gerðu ráð fyrir. Samt sem áður hefur
fjórðungurinn líka verið mjög ánægjulegur þar sem Oscar Pistorius skráði nafn
sitt í sögubækurnar sem fyrsti aflimaði keppandinn á Ólympiuleikunum.
Frammistaða Oscars og fleiri afreksíþróttamanna á Ólympíumóti fatlaðra veitti
okkur líka innblástur og sýndi umheiminum að fötlun þarf ekki að hindra fólk í
að ná markmiðum sínum. Við erum stolt yfir því að vera þátttakendur í þeirri
vegferð."
Stoðtækjamarkaðurinn í Bandaríkjunum - Á þessu ári hefur aukið eftirlit frá
endurgreiðsluaðilum eins og Medicare haft veruleg áhrif á stoðtækjamarkaðinn í
Bandaríkjunum. Það hefur skapað óvissu á markaðnum og leitt til minni
eftirspurnar eftir dýrari vörum. Samkvæmt könnun samtaka stoðtækjaverkstæða í
Bandaríkjunum (AOPA - American Orthotic & Prosthetic Association), eru 75%
þeirra verkstæða sem svöruðu könnuninni í eftirlitsferli og jafnframt segja 81%
svarenda að þessar aðgerðir hafi mikil áhrif á starfsemina. Þetta eftirlit hefur
haft meiri áhrif á markaðinn en stjórnendur gerðu upphaflega ráð fyrir og mun
þeirra áhrifa gæta fram á næsta ár.
Ólympíumót fatlaðra - Team Össur náði mjög góðum árangri á Ólympíumóti fatlaðra
núna í haust. Hópurinn samanstóð af mörgum fremstu íþróttamönnum heims og vann
hann samtals til 21 verðlauna (6 gullverðlauna, 7 silfurverðlauna og 8
bronsverðlauna) og setti að auki 6 heimsmet. Af þeim aflimuðu afreksmönnum sem
komust í úrslit notuðu 2/3 fætur frá Össuri, til dæmis Flex-foot Cheetah.
Áætlun 2012 - Vegna neikvæðra markaðsaðstæðna á stoðtækjamarkaði í Bandaríkjunum
og minni sölu þar gera stjórnendur ráð fyrir því að niðurstöður ársins verði
undir áður birtri áætlun fyrir árið 2012 um innri söluvöxt á bilinu 4-6%, mælt í
staðbundinni mynt, og EBITDA leiðrétt á bilinu 20-21% af veltu. Endurskoðuð
áætlun gerir ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 2-3%, mælt í staðbundinni mynt,
og EBITDA leiðrétt á bilinu 18-19% af veltu.
Símafundur á morgun, miðvikudaginn 24. október, kl. 10:00
Á morgun, miðvikudaginn 24. október, verður haldinn símafundur þar sem farið
verður yfir niðurstöður ársfjórðungsins. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00
CET. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni
www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: 44 (0) 1452 555131 or + 46(0)8 506 307 79
Bandaríkin: + 1 866 682 8490
Ísland: 800 9300
Athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í
fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors