Össur - uppgjör annars ársfjórðungs 2011
METSALA Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI
Sala -Söluvöxtur á öðrum ársfjórðungi var 17% mælt í Bandaríkjadölum, og í
fyrsta skipti sem salan fer yfir 100 milljónir dala í einum fjórðungi. Salan
jókst um 10% mælt í staðbundinni mynt og skila öll landsvæði og vörumarkaðir
aukinni sölu. Heildarsalan nam 105 milljónum Bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi
samanborið við 90 milljónir dala á öðrum ársfjórðungi 2010. Góður árangur í sölu
á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum heldur áfram, en sala á þessum vörum
var hæg í Evrópu. Söluvöxtur í spelkum og stuðningsvörum var 16%, mælt í
staðbundinni mynt. Söluvöxtur í stoðtækjum var 4%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - Sameining á framleiðslueiningum hefur áhrif á arðsemina á fjórðungnum.
EBITDA nam 20 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu. Framlegð nam 63
milljónum dala eða 60% af sölu og hagnaður nam 10 milljónum dala eða 10% af
sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Niðurstöður annars ársfjórðungs eru almennt góðar og í takt við áætlun okkar
fyrir árið í heild. Allir markaðir skila viðunandi vexti og frammistaða okkar á
nokkrum mörkuðum var sérlega góð. Við höldum áfram að auka markaðshlutdeild
okkar á spelku- og stuðningsvörumarkaðnum í Bandaríkjunum, sem er okkar stærsti
markaður, og í Evrópu náðum við mjög góðum árangri á stoðtækjamarkaðnum, hvort
sem litið er til landsvæða eða vörulína."
Helstu tíðindi á fjórðungnum:
* Stöðugt framboð á nýjum vörum - Gott og jafnt framboð á nýjum vörum er
mikilvægur þáttur í vexti Össurar. Á öðrum ársfjórðungi voru fimm nýjar
vörur kynntar, tvær í spelkum og stuðningsvörum og þrjár í stoðtækjum.
* Sameining framleiðslueininga - Eitt mikilvægasta verkefnið á þessu ári er
sameining á framleiðslueiningum og uppbygging á nýrri framleiðslueiningu
fyrir spelkur og stuðningsvörur í Mexikó. Verkefnið gengur vel og er gert
ráð fyrir að flutningur á allri framleiðslu á spelkum og stuðningsvörum í
Bandaríkjunum verði lokið fyrir árslok 2011.
Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á
bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA, leiðrétt fyrir
einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu, fyrir árið í
heild. Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri áætlun fyrir árið 2011.
Símafundur föstudaginn 29. júlí kl. 10:00
Á morgun, föstudaginn 29. júlí 2011, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta,
hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður annars
ársfjórðungs. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EDT. Á fundinum
munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri,
kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður
hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors