Össur - uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2011
Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 06/2011
Reykjavík, 4. maí 2011
GÓÐUR ÁRANGUR
Sala - Söluvöxtur var mjög góður eða 11% mælt í staðbundinni mynt. Heildarsalan
nam 97 milljónum Bandaríkjadala á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 86
milljónir dala á fyrsta ársfjórðungi 2010. Sala á spelkum og stuðningsvörum var
mjög góð í Bandaríkjunum en í meðallagi í Evrópu og var heildarvöxturinn 20%,
mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum var 5%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - Össur sýnir áfram góða arðsemi af rekstri. EBITDA nam 18 milljónum
Bandaríkjadala eða 19% af sölu. Framlegð nam 61 milljón dala eða 63% af sölu og
hagnaður nam 8 milljónum dala eða 8% af sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Árið byrjar vel með góðum árangri á fyrsta ársfjórðungi. Við erum ánægð með
niðurstöðurnar og frammistaðan er almennt mjög góð. Nýjar vörur sem kynntar voru
á síðasta ári skila mikilvægu framlagi til aukinnar sölu. Góður vöxtur er á
báðum vörumörkuðum, sérstaklega á spelku- og stuðningsvörumarkaðnum í
Bandaríkjunum þar sem við erum að auka við okkar markaðshlutdeild. Við munum
halda áfram að styrkja vörulínur okkar og væntum þess að kynna spennandi vörur á
þessu ári."
Helstu áfangar á árinu:
* Mikill vöxtur í spelkum og stuðningsvörum - Metvöxtur var í sölu á spelkum
og stuðningsvörum í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi og hefur Össur náð
að auka markaðshlutdeild sína þar. Nýjar vörur sem kynntar voru á markaðnum
á síðasta ári, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, eru á meðal söluhæstu
vara félagsins og styðja við þennan góða vöxt.
* Mexíkó - Uppbygging á verksmiðju fyrir spelkur og stuðningsvörur í Mexíkó
heldur áfram. Á síðasta ári var framleiðsla á hálskrögum flutt frá Allentown
og Paulsboro til Mexíkó og á þessu ári verður framleiðsla á hnéspelkum
flutt frá Foothill Ranch í Kaliforníu til Mexíkó.
* Fjármögnun - Í mars gerði Össur samning um langtímafjármögnun við þrjá
alþjóðlega banka, ING Bank, Nordea og SEB, að fjárhæð 231 milljón
Bandaríkjadala. Lánasamningurinn markar tímamót í fjármögnun félagsins og
hefur Össur nú tryggt sér alþjóðlegan aðgang að fjármagni, bæði eigin fé og
lánsfé.
Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á
bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA leiðrétt fyrir
einskiptistekjum og -kostnaði verði á bilinu 20-21% fyrir árið í heild. Óbreytt
frá áður birtri áætlun fyrir árið 2011.
--------------------------------------------------------------------------------
Símafundur fimmtudaginn 5. maí kl. 10:00
Á morgun, fimmtudaginn 5. maí 2011, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta,
hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður fyrsta
ársfjórðungs. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EDT. Á fundinum
munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri,
kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður
hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors