Össur - uppgjör þriðja ársfjórðungs 2011
Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 11/2011
Reykjavík, 27. október 2011
GÓÐUR SÖLUVÖXTUR
Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 12%, mælt í staðbundinni mynt.
Heildarsalan nam 101 milljón Bandaríkjadala samanborið við 87 milljónir dala á
þriðja ársfjórðungi 2010. Öll landsvæði og vörumarkaðir sýndu vöxt á þessum
ársfjórðungi. Sala á spelkum og stuðningsvörum var sérstaklega góð og skilaði
17% söluvexti, mælt í staðbundinni mynt. Söluvöxtur í stoðtækjum var jafnframt
góður eða 7%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - Arðsemi Össurar er áfram góð og jókst hagnaður félagsins um 165%
samanborið við þriðja ársfjórðung 2010. EBITDA nam 21 milljón Bandaríkjadala eða
21% af sölu. Framlegð nam 64 milljónum dala eða 63% af sölu og hagnaður nam 11
milljónum dala eða 11% af sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Salan á þriðja ársfjórðungi var mjög góð og við erum ánægð með frammistöðuna,
enda sýndu öll landsvæði og vörumarkaðir vöxt. Gott og stöðugt framboð á nýjum
vörum er mikilvægt fyrir vöxt félagsins og þær vörur sem komu á markað á þessu
ári og því síðasta áttu stóran þátt í þessari velgengni. Á ársfjórðungnum
kynntum við enn eina vöruna í Bionic vörulínu félagsins, SYMBIONIC LEG, sem er
sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Varan sameinar eiginleika RHEO KNEE og
PROPRIO FOOT og veitir einstaka virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan
hné. Þessi nýja viðbót í Bionic vörulínunni staðfestir forystu okkar í
rafeindastýrðum stoðtækjum með gervigreind."
Helstu tíðindi á fjórðungnum:
* SYMBIONIC LEG kynntur - Í september var SYMBIONIC LEG kynntur á
vörusýningunni AOPA í Bandaríkjunum. SYMBIONIC LEG sameinar þekkta virkni
frá RHEO KNEE og PROPRIO FOOT í eina heildstæða lausn sem veitir einstaka
virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan hné. Þessi byltingarkennda vara
er sú fyrsta sinnar tegundar á markaðnum.
* Framleiðsla í Mexico - Verksmiðja Össurar í Mexíkó var formlega opnuð í
september. Össur hóf uppbyggingu á verksmiðjunni fyrir ári síðan og hefur nú
flutt framleiðslu á nokkrum vörulínum þangað frá Bandaríkjunum. Verksmiðjan
er með hágæða tækjabúnað, vel menntað starfsfólk og viðurkennda
framleiðsluferla.
* Stöðugt framboð á nýjum vörum - Á fjórðungnum voru sex nýjar vörur kynntar,
fjórar spelkur og stuðningsvörur og tvær stoðtækjavörur. Framboð á nýjum
vörum hefur verið stöðugt á þessu ári og gott jafnvægi á milli nýrra vara og
vara sem hafa verið uppfærðar.
Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á
bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt, og að EBITDA, leiðrétt fyrir
einskiptistekjum og -kostnaði, verði á bilinu 20-21% af veltu fyrir árið í
heild. Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri áætlun fyrir árið 2011.
Símafundur föstudaginn 28. október kl. 10:00
Á morgun, föstudaginn 28. október 2011, verður haldinn símafundur þar sem farið
verður yfir niðurstöður þriðja ársfjórðungs. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT /
12:00 CET. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur
Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn
fer fram á ensku og verður hægt að fylgjast með honum á netinu á slóðinni
www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors