Össur hf. - ársuppgjör 2009
Tilkynning frá Össuri hf. nr. 3/2010
Reykjavík, 4. febrúar 2010
*
Stöðugur rekstur árið 2009
Helstu atriði á árinu:
* Heildarsala 331 milljón Bandaríkjadala
* Salan var vaxandi yfir árið
* EBITDA hlutfall 20%
* Góður árangur í stoðtækjum
* Önnur kynslóð af Bionics hátæknivörum kynnt
* Sterkara dreifikerfi
* Skráning á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn
Áætlun 2010:
* Söluvöxtur 3-4%, í staðbundinni mynt
* EBITDA vöxtur 8-10%, í staðbundinni mynt
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Niðurstaða ársins er góð og sýnir sterka stöðu félagsins. Á árinu hafa
efnahagsþrengingar haft áhrif á viðskiptavini okkar og ákveðna markaði. Engu að
síður sýnir Össur góðan rekstur og arðsemi. Tímamót eru í sölu á hátæknivörum
okkar vegna nýrrar kynslóðar af hátæknihnénu RHEO KNEE sem og PROPRIO FOOT sem
hefur verið samþykktur inn í endurgreiðslukerfin í Bandaríkjunum. Á árinu 2009
höfum við lagt mikla áherslu á að aðlaga spelkuhluta félagsins til að fullnýta
möguleika okkar á þeim markaði. Við erum vongóð um að 2010 verði spennandi ár
hjá Össuri."
Össur hf. kynnir afkomu ársins, fimmtudaginn 4. febrúar kl. 11:00 í
Kaupmannahöfn
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn 4. febrúar í
Kaupmannahöfn. Fundurinn verður á Radisson Blu Royal Hotel, Hammerichsgade 1, og
hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir
Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu
félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku.
Sýnt verður beint frá fundinum á netinu, á slóðinniwww.ossur.com/investors
<http://www.ossur.com/investors>
Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Símanúmer fyrir fundinn eru:
Ísland:800 9313
Evrópa:+ 44 (0) 207 509 5139
Bandaríkin: +1 718 354 1226