Össur hf. - Uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2009
Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung 2009
* Sala var 81,3 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 3% mælt í
staðbundinni mynt, eða 12% í USD
* EBITDA var 17,0 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 11%
* EBITDA hlutfall var 21%, sem er sama hlutfall og fyrir sama
tímabil í fyrra
* Hagnaður tímabilsins var 3,5 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
við 3,9 milljónir á sama tímabili árið 2008
* Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 0,83 bandarísk
sent, samanborið við 0,93 sent á sama tímabili í fyrra
* Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu
tilliti til kauprétta, var 3,2 bandarísk sent, samanborið við 2,4
á sama tímabili í fyrra
Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2009
* Sala var 158,5 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 3% mælt í
staðbundinni mynt, eða 12% í USD
* EBITDA var 29,8 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 29%
* EBITDA hlutfall var 19%, samanborið við 23% á sama tímabili í
fyrra
* Hagnaður tímabilsins var 11,1 milljón Bandaríkjadala, samanborið
við 10,6 milljónir á sama tímabili árið 2008
* Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 6,84 bandarísk
sent, jókst um 45%
* Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu
tilliti til kauprétta, var 11,92 bandarísk sent, jókst um 21%
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Efnahagsþrengingar á öllum okkar helstu mörkuðum hafa haft áhrif á
sölu og viðskiptavinir okkar fara varfærnislega vegna óvissu um
ástandið. Samningar við suma birgja í Evrópu hafa ekki verið
endurnýjaðir sem hefur tímabundið neikvæð áhrif á sölu í Evrópu en
ekki arðsemi. Skýr stefna í sölu og markaðsmálum í Bandaríkjunum
gefur von um jákvæða þróun. Ný útgáfa af rafeindastýrða hnénu RHEO
KNEE II sem og staðfesting á að rafeindastýrði fóturinn PROPRIO FOOT
hahfi verið samþykktur inn í endurgreiðslukerfið í Bandaríkjunum eru
mikilvægir áfangar fyrir framtíð bionic vörulínunnar."
The press release including tables, the Investor Presentation Q2 2009
and the Financial Statement Q2 2009 can be downloaded from the
following links: