Össur hf. - Uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2008
Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2008
* Sala var 89,8 milljónir Bandaríkjadala
* Söluaukning vegna innri vaxtar var 12%
* EBITDA var 23 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 124% frá sama
tímabili 2007
* EBITDA leiðrétt var 17,4 milljónir, jókst um 51% frá sama
tímabili 2007
* Hagnaður tímabilsins var 6,7 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
við 2,7 milljóna tap á sama tímabili árið 2007
* Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
tilliti til kauprétta var 2,98 bandarísk sent, jókst um 231% frá
sama tímabili 2007
* Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 1,58 bandarísk
sent, samanborið við -0,70 bandarísk sent á sama tímabili árið
2007
Jón Sigurðsson, forstjóri:"Við erum ánægð með niðurstöður fyrsta ársfjórðungs. Evrópa og Asía
sýna mjög góðan vöxt, bæði í stoðtækjum og spelkum og stuðningsvörum.
Salan á stoðtækjum heldur áfram að vaxa umfram vöxt markaðarins, sem
staðfestir sterka stöðu Össurar á þessum markaði. Salan á spelkum og
stuðningsvörum í Bandaríkjunum er minni en vonir stóðu til en
stjórnendur hafa trú á því að viðsnúningur sé í sjónmáli. Helstu
áherslur ársins 2008 eru að auka arðsemi, áframhaldandi nýting á
dreifileiðum fyrirtækisins fyrir nýjar vörur, sem og að hagræða í
vörulínu fyrirtækisins í spelkum og stuðningsvörum. Nú þegar hafa
verið sett af stað mikilvæg verkefni þessu til stuðnings."
Live comments form the CEO, see link here below:
www.ossur.com/ceocomments