Össur hf. - Uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2009
Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2009
* Sala var 77,2 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 13%, eða
4% mælt í staðbundinni mynt
* EBITDA var 12,9 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 26%*
mælt í staðbundinni mynt
* EBITDA hlutfall var 17%, samanborið við 20%* fyrir sama tímabil í
fyrra
* Hagnaður tímabilsins var 7,6 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
við 6,7 milljónir á sama tímabili árið 2008
* Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 1,79 bandarísk
sent, samanborið við 1,58 sent á sama tímabili í fyrra
* Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu
tilliti til kauprétta, var 2,98 bandarísk sent, óbreytt miðað við
sama tímabil árið 2008
Jón Sigurðsson, forstjóri:"Salan á fyrsta ársfjórðungi var minni en við væntum og dróst saman
um 4%, mælt í staðbundinni mynt. Efnahagsþrengingar á öllum okkar
helstu mörkuðum hafa áhrif á söluna á fyrsta ársfjórðungi. Sala á
stoðtækjum er í takt við vöxt markaðarins, en sala á spelkum og
stuðningsvörum er minni en áætlað var í Bandaríkjunum. Við höfum gert
töluverðar breytingar í stjórnun á sölu og markaðsmálum sem við
væntum að muni skila árangri. Á árinu 2009 eru margar nýjar og
spennandi vörur væntanlegar og voru tvær nýjar vörur kynntar á fyrsta
ársfjórðungi."
*Ath. að undanskildum einskiptistekjum á fyrsta ársfjórðungi 2008
The press release including tables, the Investor Presentation Q1 2009
and the Financial Statement Q1 2009 can be downloaded from the
following links: