Ossur Hf : Viðskipti með hlutabréf Össurar sameinuð í kauphöll Nasdaq Copenhagen frá 6. desember 2017

Report this content
Tilkynning nr. 77/2017
30. október 2017

Viðskipti með hlutabréf Össurar sameinuð í kauphöll Nasdaq Copenhagen frá 6. desember 2017

Viðskipti með hlutabréf Össurar fara brátt eingöngu fram í kauphöll Nasdaq Copenhagen eftir að Kauphöll Íslands féllst á beiðni Össurar um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum í Kauphöll Íslands. Með því að sameina viðskiptin á einum markaði mun seljanleiki hlutabréfa Össurar aukast og verðmyndun verða virkari öllum hluthöfum til hagsbóta.

Síðasti viðskiptadagur með hlutabréf Össurar í Kauphöll Íslands verður 30. nóvember 2017. Sameining viðskipta í kauphöll Nasdaq Copenhagen mun svo eiga sér stað með sjálfkrafa umbreytingu hlutabréfanna 6. desember 2017. Frá þeim degi verða öll hlutabréf í Össuri eingöngu til viðskipta í kauphöll Nasdaq Copenhagen.

Hluthafar þurfa ekki aðhafast neitt og fjöldi hluta verður óbreyttur.

Umbreytingin mun aðeins hafa áhrif á hluthafa sem eiga hlutabréf sem eru til viðskipta í Kauphöll Íslands. Í viðhengi er að finna frekari upplýsingar um framkvæmdina og áhrif umbreytingarinnar fyrir viðkomandi hluthafa.

Tilkynningu Kauphallar Íslands má finna hér: https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=807532&lang=en

Jón Sigurðsson, forstjóri:

"Skráning Össurar í Kauphöll Íslands árið 1999, fyrir um 18 árum, gegndi veigumiklu hlutverki í vexti Össurar úr litlu stoðtækjafyrirtæki í leiðandi félag á heimsvísu og við erum þakklát fyrir þau tækifæri sem skráningin veitti okkur. Með því að sameina viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll Nasdaq Copenhagen mun seljanleiki bréfanna aukast og verðmyndun verða virkari til hagsbóta fyrir alla hluthafa Össurar."

Nánari upplýsingar

Jón Sigurðsson, forstjóri                                                   515 1300

Sveinn Sölvason, fjármálastjóri                                         515 1300

Davíð Örn Hreiðarsson, fjárfestatengill                             515 1380                             dohreidarsson@ossur.com

Tilkynningar frá Össuri í tölvupósti
Ef óskað er eftir tilkynningum frá Össuri í tölvupósti má finna skráningu á heimasíðunni okkar: www.ossur.com/investors.

Um Össur
Össur (NASDAQ: OSSR) hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sínu sviði með höfuðstöðvar á Íslandi og rekur starfsstöðvar í yfir 20 löndum. www.ossur.com

Subscribe

Documents & Links