Össur hf. Afskráning samþykkt
Tilkynning frá Össuri hf. Nr. 5/2011
Reykjavík, 11. mars 2011
Afskráning samþykkt
NASDAQ OMX á Íslandi samþykkti í dag ósk Össurar frá 15. nóvember 2010 um að
taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum. Síðasti dagur viðskipta verður 25. mars
2011.
Jafnframt hefur NASDAQ OMX á Íslandi ákveðið, að eigin frumkvæði og án samráðs
við félagið, að taka upp viðskipti með hlutabréfin frá og með 28. mars 2011.
Félaginu er ekki skylt að sinna upplýsingaskyldu gagnvart þeim markaði.
Afskráningin kallar ekki á neinar ráðstafanir af hálfu hluthafa.
Viðskipti með hlutabréf Össurar fara fram í kauphöll NASDAQ OMX í
Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: +354 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: +354 515 1300