Össur hf. kaupir Skóstofuna ehf.

Í dag, 1. september 2000 var undirritaður samningur um kaup Össurar hf. á Skóstofunni ehf., Dunhaga. Tilgangurinn er að efla og víkka út þjónustu innanlandsdeildar Össurar hf., á sviði stoðtækjasmíða, skósmíða, innleggjagerðar og göngugreiningar.

Kaup Össurar hf. á Skóstofunni ehf. fela ekki í sér breytingu á stefnumörkun fyrirtækisins og falla utan megin sviðs þess, sem er þróun, framleiðsla, dreifing og sala stoðtækja á alþjóðamarkaði.

Samningurinn nær til kaupa á vélbúnaði, tækjabúnaði og birgðum Skóstofunnar ehf., ásamt því að Össur hf. tekur yfir samning við Tryggingastofnun ríkisins um sérgerða og aðlagaða skó. Í samningnum er einnig gert ráð fyrir að eigendur Skóstofunnar ehf. komi til starfa hjá Össuri hf. og verður þar með enn frekari stækkun á hópi faglegra starfsmanna hjá innanlandsdeild Össurar hf.

Kaupverðið er 15 milljónir króna og greiðist með hlutabréfum í Össuri hf., auk 5 milljóna króna sem koma til greiðslu á næstu 3 árum, verði sölu- og hagnaðarmarkmiðum fullnægt. Samningurinn mun taka gildi 2. október n.k. og leggst starfsemi Skóstofunnar ehf. á Dunhaga af í núverandi mynd.