Össur hf. kynnir afkomu ársins, fimmtudaginn 4.febrúar kl. 11:00 í Kaupmannahöfn

Report this content

                        
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn 4. febrúar í
Kaupmannahöfn. Fundurinn fer fram á Radisson SAS Royal Hotel,Hammerichsgade 1,
og hefst kl. 11:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón
Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu
félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku.

Sýnt verður beint frá fundinum á netinu, á slóðinniwww.ossur.com/investors
<http://www.ossur.com/investors>

Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Símanúmer fyrir fundinn eru:
Ísland: 800-9313
Evrópa: + 44 (0) 207 509 5139
Bandaríkin: +1 718 354 1226

Kynningarefni verður aðgengilegt á heimasíðu Össurar:  www.ossur.com
<http://www.ossur.com/>, fréttavef Kauphallarinnar NASDAQ/ OMX:
http://nasdaqomxnordic.com/Frettir og á www.huginonline.com
<http://www.huginonline.com/>






Subscribe