Össur hf. semur við Saga Capital um viðskiptavakt
Össur hf. hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að Saga
Capital annist viðskiptavakt með hlutabréf Össurar fyrir eigin
reikning Saga Capital. Í samningi um viðskiptavakt felst að Saga
Capital setur daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Össurar í
því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði
með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboðin eru sett fram í
viðskiptakerfi Nasdaq OMX, áður en markaður er opnaður og skulu ekki
gilda lengur en innan dagsins.
Skilmálar viðskiptavaktasamningsins eru eftirfarandi:
- Saga Capital skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og
sölutilboð í hlutabréf Össurar að lágmarki kr. 200.000 að nafnverði á
verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti.
- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en
1,25%
- Frávik frá síðasta viðskiptaverði skal ekki vera meira en 2,0%.
- Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 150
milljónir að markaðsvirði.
Saga Capital mun hefja viðskiptavaktina frá og með deginum í dag,
miðvikudegi, 23. apríl 2008.