Össur sækir um skráningu á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn
Stjórn Össurar hf. hefur í dag ákveðið að óska eftir að hlutabréf
félagsins verði skráð í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.
Hlutabréf Össurar munu áfram vera skráð í kauphöll NASDAQ OMX á
Íslandi, eins þau hafa verið síðan 1999.
Skráning í Kaupmannahöfn er rökrétt skref fyrir félagið og veitir
aðgang að alþjóðlegum fjárfestum. Kaupmannahöfn er virtur markaður
fyrir fyrirtæki á heilbrigðissviði. Skráningarreglur og aðrar
lagalegar skyldur eru svipaðar í Danmörku og á Íslandi þar sem að
báðar kauphallirnar tilheyra NASDAQ OMX samstæðunni.
Jón Sigurðsson, forstjóri: "Skráningin á Íslandi hefur reynst okkur
vel og við munum áfram leggja metnað okkar í að þjóna núverandi
hluthöfum sem og nýjum. Frá því að félagið var skráð á
hlutabréfamarkað hefur sala þess ríflega tuttugufaldast og Össur
breyst í alþjóðlegt fyrirtæki. Skráning bréfa okkar í Kaupmannahöfn
er eðlilegt framhald fyrir félagið. Skráningunni er ætlað að auka
viðskipti með hlutabréf í félaginu, stuðla að eðlilegri verðmyndun
þeirra og styðja við framtíðarvöxt."
Gert er ráð fyrir að skráningin verði samþykkt í næstu viku. Nordea
Bank mun vera umsjónaraðili útgáfunnar í Danmörku. Nánari upplýsingar
verða veittar þegar skráningin hefur verið samþykkt.
Í framhaldi af skráningunni íhugar stjórn félagsins lítilsháttar
hlutafjáraukningu, eða sem nemur 5-7% af heildarhlutafénu, til þess
að auka viðskipti með bréf félagsins. Komi til slíkrar aukningar munu
bréfin verða seld til fagfjárfesta og hefur Össur ráðið Nordea
Markets sem ráðgjafa vegna þessa.
Viðskipti með íslenska fjármálagerninga eru háð gjaldeyrisreglum
Seðlabanka Íslands. Erlendum aðilum er frjálst að eiga viðskipti með
bréf félagsins í Danmörku og innlendum aðilum er frjálst að eiga
viðskipti með bréfin á Íslandi.
Upplýsingar um Össur, kynningarbæklingur og nánari upplýsingar um
heimildir til að eiga viðskipti með bréfin sem og möguleika á að
flytja þau milli Íslands og Danmerkur er að finna á heimasíðu
félagsins: www.ossur.com/investors
Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044