Skráning Össurar í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn samþykkt
Umsókn Össurar hf. um skráningu hlutabréfa félagsins í kauphöll
NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn hefur verið samþykkt. Hlutabréf Össurar
verða opinberlega skráð og tekin til viðskipta 4. september 2009
(auðkenni OSSR, ISIN IS0000000040). Hlutabréf Össurar munu áfram vera
skráð í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi.
Útgefið hlutafé Össurar er 423.000.000 kr. og skiptist í jafnmarga
hluti að nafnvirði ein króna hver. Allir hlutirnir eru í sama
hlutaflokki og þeim fylgja sömu réttindi.
Nordea Bank Danmark A/S er umsjónaraðili með bréfum Össurar sem verða
skráð hjá VP Securities A/S í Danmörku. Össur hefur jafnframt gert
samning um viðskiptavakt við Nordea Markets (deild innan Nordea Bank
Danmark A/S).
Í tengslum við skráninguna hefur Össur gefið út ágrip, samþykkt af
danska fjármálaeftirlitinu, þar sem er að finna helstu upplýsingar um
félagið og þá áhættu sem tengist starfsemi þess og hlutabréfum.
Hjálagt má finna enska útgáfu af ágripinu. Frekari upplýsingar um
Össur, þ.m.t. ágripið, kynningarbækling um félagið og starfsemi þess,
auk upplýsinga um heimildir til að eiga viðskipti með hlutabréfin sem
og möguleika á að flytja þau milli Íslands og Danmerkur er að finna á
heimasíðu félagsins: www.ossur.is/investors.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044