Skráningu á 29.500.000 nýjum hlutum lokið
Ekki til útgáfu eða dreifingar í Ástralíu, Kanada, Japan eða
Bandaríkjunum.
Fréttatilkynning frá Össuri hf
Reykjavík, 6. nóvember 2009; GMT 11:15
Skráningu á 29.500.000 nýjum hlutum lokið
Vísað er til kauphallartilkynningar, dags. 3. nóvember 2009.
Skráningu á hlutafjáraukningu vegna útboðs Össurar hf. á nýjum
hlutum að nafnvirði 29.500.000 kr. er lokið. Hlutafjáraukningin hefur
verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá. Hlutafjáraukningin nemur um 7,0% af
hlutafé Össurar hf. fyrir útboðið og um 6,5% af hlutafé félagsins
eftir aukninguna. Eftir aukninguna nemur heildarhlutafé Össurar
452.500.000 hlutum, að nafnvirði 1 kr. á hlut, sem svarar til
452.500.000 kr. að nafnvirði.
Nýju hlutirnir verða skráðir undir núgildandi auðkenni bréfa Össurar
hjá NASDAQ OMX á Íslandi og NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, IS0000000040,
þann 9. nóvember 2009.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Össurar hf.:
www.ossur.is/investors
Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044
*****
Tilynning þessi er ekki tilboð um sölu verðbréfa í Bandaríkjunum.
Verðbréf má ekki bjóða til sölu eða selja í Bandaríkjunum án
skráningar eða undanþágu skv. bandarískum verðbréfalögum frá 1933,
með áorðnum breytingum. Útgefandi verðbréfanna hefur ekki skráð og
hefur ekki áform um að skrá neinn hluta útboðsins í Bandaríkjum og
hyggst ekki bjóða út verðbréf opinberlega í Bandaríkjunum.
Tilkynningu þessari er aðeins dreift til og beinist aðeins til (i)
aðila utan Bretlandseyja eða (ii) aðila sem eru fagfjárfestar í
skilningi e-liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2003/71/EB
("Evróputilskipunarinnar um útboðs- og skráningarlýsingar") og sem
eru annað hvort (x) fagfjárfestar sem falla undir 5. mgr. 19. gr.
breskra laga um fjármálaþjónustu og markaði frá árinu 2000 ("the
Financial Services and Markets Act 205 (Financial Promotion) Order
2005") eða (y) fjársterk fyrirtæki, svo og til annarra sem heimilt er
að lögum að dreifa skjalinu til og falla undir a - d-liði 2. mgr. 49.
gr. fyrrnefndra laga (en allir þeir aðilar sem nefndir eru í liðum
(i) og (ii) hér að framan eru sameiginlega nefndir "viðeigandi
aðilar". Hinir nýju hlutir eru aðeins falir viðeigandi aðilum og
aðeins verður gengið að boðum, tilboðum eða samningum viðeigandi
aðila um að skrifa sig fyrir, kaupa eða eignast verðbréfin með öðrum
hætti. Aðili, sem ekki er viðeigandi aðili, ætti ekki að gera neinar
ráðstafanir á grundvelli þessa skjals eða reiða sig á neinn hátt á
efni þess.
Tilkynning þessi er auglýsing og telst ekki útboðs- eða
skráningarlýsing í skilningi Evróputilskipunarinnar um útboðs- og
skráningarlýsingar ásamt hvers kyns gerðum til innleiðingar hennar í
viðkomandi aðildarríkjum samkvæmt henni.
Í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleitt hafa
Evróputilskipunina um útboðs- og skráningarlýsingar, er orðsendingu
þessari aðeins beint til fjárfesta í viðkomandi aðildarríki sem
teljast fagfjárfestar í skilningi tilskipunarinnar og á hún aðeins
erindi við slíka fjárfesta.
*****
Í tilkynningu þessari er að finna tilteknar yfirlýsingar þar sem
horft er til framtíðar, þ.m.t. yfirlýsingar um viðskipti félagsins og
útboðið. Slíkar yfirlýsingar byggjast á upplýsingum, ályktunum og
áætlunum sem af hálfu félagsins eru taldar raunhæfar. Þær kunna að
breytast eða vera breytt vegna óvissu sem tengist efnahagslegu og
fjárhagslegu umhverfi félagsins, ásamt lagalegum atriðum og
markaðsaðstæðum. Að auki kunna viðskipti félagsins og geta þess til
þess að ná markmiðum sínum að verða fyrir neikvæðum áhrifum ef einn
eða fleiri af þeim áhættuþáttum koma fram, sem lýst er í
samantektarskjalinu sem tekið var saman í tengslum við skráningu
hlutabréfa Össurar á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, svo og í kaflanum
sem ber yfirskriftina "Áhættuþættir" í árskýrslu Össurar fyrir 2008,
eða ef aðrir áhættuþættir koma fram, sem ekki eru fyrirséðir á
þessari stundu eða taldir eru óverulegir. Félagið skuldbindur sig
ekki til þess að ná markmiðum sínum, né tekur það neina ábyrgð á því
að það muni gerast. Fjárfestar eru sér í lagi hvattir til að gefa
sérstakan gaum að þeim áhættuþáttum sem lýst er í samantektarskjalinu
sem tekið var saman í tengslum við skráningu hlutabréfa Össurar á
NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn, ásamt kaflanum um áhættuþætti í
ársskýrslu Össurar fyrir árið 2008.