Tilkynning um lok áskriftatímabils í hlutafjárútboði Össurar hf.

Report this content

Áskriftarhluta hlutafjárútboðs Össurar hf. lauk í gær.  Þátttaka var mjög góð og skráðu 8.471 manns sig fyrir alls 174.768.162,- krónum að nafnvirði eða 4.194.435.888,- að söluvirði.

Í boði voru hins vegar einungis 22,8 milljónir króna að nafnviðri og því þurfti að koma til skerðingar og nemur hlutur hvers tæplega 65.000,- krónum að söluvirði.

Í dag lýkur tilboðshluta útboðsins en þar eru 22,8 milljónir í boði og er lágmarksgengi í þeim hluta er  24, en hægt verður að skrá sig fyrir allt að 11,4 m.kr. að nafnvirði í tilboðshlutanum. Hægt er að skila tilboðum til Kaupþings, Ármúla 13a, fyrir klukkan 16:00 í dag 17. september.

Kaupþing annast hlutafjárútboð Össurar hf. og skráningu fyrirtækisins á Verðbréfaþing Íslands.

Subscribe