Uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2008
Helstu niðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung 2008
* Sala var 87,3 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 6% frá sama
tímabili 2007.
* EBITDA var 21,1 milljón Bandaríkjadala, jókst um 50% frá sama
tímabili 2007.
* EBITDA hlutfall var 24%, samanborið við 17% á sama tíma í fyrra.
* Hagnaður tímabilsins var 13,7 milljónir Bandaríkjadala,
samanborið við 2,2 milljónir á sama tímabili 2007.
* Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
tilliti til kauprétta var 4,60 bandarísk sent, samanborið við
2,10 sent á sama tímabili 2007.
* Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 3,24 bandarísk
sent, samanborið við 0,56 sent á sama tímabili í fyrra.
Helstu niðurstöður fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2008
* Sala var 269,9 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 8% frá sama
tímabili 2007.
* EBITDA var 63,1 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 52% frá sama
tímabili 2007.
* EBITDA hlutfall var 23%, samanborið við 17% á sama tímabili 2007.
* Hagnaður tímabilsins var 24,3 milljónir Bandaríkjadala,
samanborið við 900 þúsund dali á sama tímabili 2007.
* Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu
tilliti til kauprétta var 10,0 bandarísk sent, samanborið við
4,94 sent á sama tímabili í fyrra.
* Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 5,75 bandarísk
sent, samanborið við 0,24 sent á
* sama tímabili í fyrra.
Jón Sigurðsson, forstjóri:"Við erum ánægð með niðurstöður þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu
mánuði ársins. Okkur hefur tekist að auka arðsemi rekstursins
ágætlega þrátt fyrir að söluvöxtur hafi verið hægari en áætlað var. Á
síðustu tveimur árum höfum við lagt ríka áherslu á innleiðingarferli
og sameiningu til þess að byggja upp sterkt fyrirtæki á sviði stoð-
og stuðningstækja. Í dag eru tekjur félagsins dreifðar og gott
jafnvægi er milli Bandaríkjanna og Evrópu. Fjárhagslegur styrkur
Össurar er góður og er eiginfjárhlutfallið 43%. Við gerum ekki ráð
fyrir að sveiflur á fjármálamörkuðum muni hafa veruleg áhrif á
rekstur félagsins þar sem Össur starfar innan heilbrigðisgeirans.
Þegar á heildina er litið teljum við að okkur hafi tekist að byggja
upp sterkt fyrirtæki og byggja góðan grunn fyrir framtíðarvöxt"
Live comments form the CEO, see link here below:
www.ossur.com/ceocomments
The press release including tables, the Market Presentation Q3 2008
and the Financial Statement Q3 2008 can be downloaded from the
following links: