Uppgjör Össurar - annar ársfjórðungur 2010
Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 19/2010
Reykjavík, 27. júlí 2010
MIKIL SÖLUAUKNING
Sala - Sala jókst talsvert á öðrum ársfjórðungi eða um 12%, mælt í staðbundinni
mynt. Salan nam alls 90 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 81 milljón dala
á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Sala jókst í báðum stærstu vöruflokkum félagsins,
stoðtæki um 15% og spelkur og stuðningsvörur um 11%.
Arðsemi - Össur sýnir áfram góðan hagnað. EBITDA nam 20 milljónum Bandaríkjadala
eða 22% af sölu og framlegðin nam 56 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er
stöðug og aukin arðsemi er til komin vegna aukinnar sölu. Hagnaður á tímabilinu
nam 14 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 2 milljónir dala á sama tímabili
í fyrra. Gengishagnaður á fjármagnsliði hefur mikil jákvæð áhrif á hagnað.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Árangurinn á öðrum ársfjórðungi var mjög góður á öllum mörkuðum og vöxtur í
helstu vöruflokkum. Nýjum spelkum og stuðningsvörum var vel tekið á fyrri
helmingi ársins og það á sinn þátt í aukinni sölu. Sala á stoðtækjum hefur
gengið vel og aukist í öllum vörulínum. Sala á hátæknivörunum gengur áfram vel."
Helstu áfangar á öðrum fjórðungi:
* Góð frammistaða í spelkum og stuðningsvörum - Sala á spelkum og
stuðningsvörum var mjög góð í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi. Annan
ársfjórðunginn í röð gengur mjög vel í Bandaríkjunum og er söluaukning yfir
markaðsvexti. Söluaukning á spelkum og stuðningsvörum hjá EMEA var í takt
við markaðsvöxt.
* Vöxtur í öllum stoðtækjavörulínum - Sala á stoðtækjum gengur áfram mjög vel,
bæði í Bandaríkjunum og hjá EMEA, og hefur aukist umfram markaðsvöxt. Sala á
hátæknivörunum nam 15% af sölu stoðtækja á fjórðungnum. Gert er ráð fyrir að
vöxturinn verði ekki eins mikill á seinni hluta ársins.
Áætlun - Stjórnendur gera ráð fyrir að söluaukning verði í efri mörkum eða
jafnvel aðeins yfir fyrri áætlun, sem gerði ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu,
mælt í staðbundinni mynt. Gert er ráð fyrir innri EBITDA vexti yfir 10%, mælt í
staðbundinni mynt.
Símafundur kl. 10:00 þriðjudaginn 27. júlí
Í dag, þriðjudaginn 27. júlí, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta,
hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 2.
ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á
fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni
www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors