Uppgjör Össurar - fyrsti ársfjórðungur 2010
Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 15/2010
Reykjavík, 27. apríl 2010
GÓÐUR ÁRANGUR Á FYRSTA FJÓRÐUNGI
Sala- Salan á fyrsta ársfjórðungi var góð og jókst um 8%, mælt í staðbundinni
mynt. Salan nam alls 86 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 77 milljónir
dala á fyrsta ársfjórðungi 2009. Góður vöxtur var í sölu á tveimur stærstu
vöruflokkum félagsins. Sala á stoðtækjum jókst um 11% og vöxtur í sölu á spelkum
og stuðningsvörum nam 6%.
Arðsemi - Össur sýnir áfram góða arðsemi. EBITDA nam 18 milljónum
Bandaríkjadala eða 21% af sölu og framlegðin nam 54 milljónum dala, eða 63% af
sölu. Hagnaður á tímabilinu nam 10 milljónum Bandaríkjadala eða 11% af sölu, sem
er 28% aukning frá fyrsta ársfjórðungi 2009.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Við erum ánægð með árangur félagsins á fyrsta fjórðungi. Sala á stoðtækjum
gengur áfram vel og staðfestir góðan árangur bionic vörulínunnar. Á fjórðungnum
varð mikil aukning í sölu á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum og styrkir
það okkur í þeirri trú að við höfum innleitt rétt sölufyrirkomulag sem mun gera
félaginu kleift að nýta betur markaðstækifæri. Á fjórðungnum voru tólf nýjar
vörur kynntar, en þær eru mikilvægur liður í áframhaldandi vexti."
Helstu áfangar á fyrsta fjórðungi:
* Góð frammistaða í spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum - Sala á spelkum
og stuðningsvörum í Bandaríkjunum jókst í takt við vöxt á markaðnum Þessi
árangur fylgir í kjölfarið á umfangsmiklum breytingum sem voru gerðar á
sölufyrirkomulagi í Bandaríkjunum. Sala á spelkum og stuðningsvörum hjá EMEA
dróst saman á fjórðungnum.
* Frábær frammistaða í stoðtækjum - Sala á stoðtækjum gekk mjög vel á öllum
mörkuðum. Framúrskarandi árangur bionic vörulínunnar heldur áfram og nemur
bionic salan á fjórðungnum 12% af sölu stoðtækja.
* Nýjar vörur - Á fyrsta ársfjórðungi voru tólf nýjar vörur kynntar, sex
stoðtækjavörur og sex spelkur og stuðningsvörur. Mikilvægustu vörurnar eru
Miami J hálskraginn, sem er mikilvæg viðbót í flokk fyrir mænuvörur og
Rebound Air Walker sem hefur skapað mikla eftirvæntingu á markaðnum.
Heilbrigðisfrumvarp í Bandaríkjunum - Á fyrsta ársfjórðungi varð
heilbrigðisfrumvarpið í Bandaríkjunum að lögum. Frumvarpið mun hafa áhrif á
rekstur Össurar í Bandaríkjunum, en hins vegar er óvissa um áhrifin þar sem
vissir þættir frumvarpsins geta enn breyst. Þeir þættir frumvarpsins sem líklega
munu hafa hvað mest áhrif á félagið koma að öllum líkindum ekki til framkvæmda
fyrr en á árunum 2013 og2014.
Áætlun fyrir 2010 - Í kjölfar góðrar afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi hafa
stjórnendur uppfært áður birta áætlun fyrir árið. Uppfærð áætlun gerir ráð fyrir
innri vexti sem nemur 4-6% og innri EBITDA vexti yfir 10%, hvortveggja mælt í
staðbundinni mynt. Fyrri áætlun gerði ráð fyrir 3-4 % innri vexti og 8-10% innri
EBITDA vexti, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt.
Símafundur kl. 10:00 þriðjudaginn 27. apríl
Í dag, þriðjudaginn 27. apríl, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta,
hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 1.
ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á
fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á
slóðinniwww.ossur.com/investors <http://www.ossur.com/investors>
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 207 509 5139
Bandaríkin: +1 718 354 1226
Ísland: 800 9313
Nánari upplýsingar
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti
uppgjörsins.Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna
áwww.ossur.com/investors <http://www.ossur.com/investors>