Uppgjör Össurar - þriðji ársfjórðungur 2010
Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 20/2010
Reykjavík, 25.október 2010
GÓÐUR ÁRANGUR
Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 7% mælt í staðbundinni mynt. Salan
nam alls 87 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 84 milljón dala á þriðja
ársfjórðungi í fyrra. Góð Söluaukning var á spelkum og stuðningsvörum eða um
12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum jókst um 3%, mælt í
staðbundinni mynt.
Arðsemi - EBITDA framlegð nam 19 milljónum Bandaríkjadala eða 22% af sölu.
Framlegð nam 54 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er áfram stöðug.
Hagnaður á tímabilinu nam 4 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 5 milljónir
dala á sama tímabili í fyrra. Neikvæð gengisáhrif á fjármagnsliði höfðu töluverð
áhrif á hagnað.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Sala á spelkum og stuðningsvörum heldur áfram að vera góð og þá sérstaklega í
Bandaríkjunum. Mikið af nýjum vörum hefur komið út á árinu og við erum ánægð með
að nýjar spelkur og stuðningsvörur hafa jákvæð áhrif á söluvöxt á fjórðungnum.
Meðal nýrra vara sem voru kynntar á fjórðungnum er PROPRIO FOOT sem er önnur
varan í Bionic vörulínu Össurar. Bionic vörulínan hefur skapað spennu og
eftirvæntingu á markaðnum og erum við staðföst í að þróa þessa vörulínu enn
frekar."
Helstu áfangar á fjórðungnum:
* PROPRIO - Á fjórðungnum var gerviökklinn Proprio settur á markað. Proprio er
önnur varan í Bionic vörulínunni sem er kynnt á markaðinum. Proprio er
fyrsta vara sinnar tegundar og því þarf Össur að ryðja veginn og undirbúa
markaðinn. Sala á Proprio á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs mun ekki
hafa veruleg áhrif á heildarsölu félagsins.
* Spelkur og stuðningsvörur - Söluvöxtur á spelkum og stuðningsvörum hefur
verið yfir markaðsvexti. Jákvæð merki um vöxt í Bandaríkjunum staðfesta að
aukin fjárfesting í sölukerfi í Bandaríkjunum er að skila sér. Nýjar spelkur
og stuðningsvörur, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel
tekið og hafa jákvæð áhrif á vöxt.
Áætlun - Stjórnendur gera ráð fyrir að söluaukning verði í takt við upprunalegu
áætlun félagsins, sem gerir ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu, mælt í
staðbundinni mynt. Nú er gert ráð fyrir 5-7% innri EBITDA vexti, mælt í
staðbundinni mynt.
Símafundur þriðjudaginn 26. október kl. 10:00
Á morgun þriðjudaginn 26. október, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta,
hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 3.
ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á
fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni
www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar:
Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors