Jón Haukur Baldvinsson tekur við nýrri stöðu svæðisstjóra fyrir Ísland hjá Ceedr
Stafræna markaðsstofan Ceedr hefur fengið öflugan liðsstyrk í framlínu stofunnar. Jón Haukur Baldvinsson mun taka við nýrri stöðu svæðisstjóra fyrir Ísland hjá Ceedr. Hann hefur mikla reynslu í sölu- og markaðsmálum á Íslandi og í Bandaríkjunum og var í framlínu markaðsmála fyrir Icelandair á Íslandi og í Bandaríkjunum , Byko, Marel, Icelandic Glacial í Bandaríkjunum og Coca-Cola á Íslandi.
Jón Haukur til Ceedr
Aukin umsvif
Stafræna markaðsstofan Ceedr hefur fengið öflugan liðsstyrk í framlínu stofunnar. Jón Haukur Baldvinsson mun taka við nýrri stöðu svæðisstjóra fyrir Ísland hjá Ceedr. Hann hefur mikla reynslu í sölu- og markaðsmálum á Íslandi og í Bandaríkjunum og var í framlínu markaðsmála fyrir Icelandair á Íslandi og í Bandaríkjunum , Byko, Marel, Icelandic Glacial í Bandaríkjunum og Coca-Cola á Íslandi. Jón Haukur er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í auglýsinga-og markaðsfræði frá London College of Communications.
Ceedr er hinn stafræni armur Pipar\TBWA sem sérhæfir sig í notkun stafrænna leiða í sölu- og markaðssetningu fyrir fyrirtæki þvert yfir Norðurlöndin og í Evrópu. Einnig er Ceedr vottaður þjónustuaðili Hubspot og aðstoðar fyrirtæki við uppsetningu og innleiðingu á Hubspot og hannar jafnframt vefsíður inn í það kerfi.
„Jón Haukur er mikill fengur fyrir Ceedr því hann er reynslubolti úr okkar geira. Þekking og reynsla hans nýtist bæði viðskiptavinum Ceedr og Pipar\TBWA gríðarlega vel og er hann öflug viðbót í stjórnendateymi okkar,” segir Hreggviður S. Magnússon, framkvæmdastjóri Ceedr um ráðninguna.
„Að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri vegferð sem Ceedr er á þykir mér virkilega spennandi. Stofan hefur mjög sterkan grunn og hjá henni starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem kemur víðsvegar að úr heiminum og býr yfir mikilli þekkingu. Umsvifin eru að aukast jafnt og þétt hér á landi og á hinum Norðurlöndunum og það verður spennandi að fá tækifæri til þess að leggja mín lóð á vogarskálarnar,” segir Jón Haukur.
Hjá Ceedr starfa á þriðja tug starfsmanna sem þjónusta um 100 fyrirtæki.
Nánari upplýsingar:
Hreggviður S. Magnússon
framkvæmdastjóri
Ceedr
+354 855 5546
Press Release
For Immediate Release
Ceedr Appoints Jón Haukur Baldvinsson as Regional Director for Iceland
Reykjavík, Iceland – [10.04.2025] – Digital marketing agency Ceedr has appointed Jón Haukur Baldvinsson as its new Regional Director for Iceland, marking a significant step in the company’s continued expansion across the Nordic region.
Jón Haukur brings over two decades of experience in sales and marketing, having held senior roles with prominent brands in both Iceland and the United States. His previous positions include leading marketing initiatives for Icelandair in both markets, as well as for Byko, Marel, Icelandic Glacial, and Coca-Cola Iceland.
He holds an MBA from Reykjavik University and a BA in Advertising and Marketing from the London College of Communication.
“Jón Haukur is a key addition to Ceedr’s leadership team,” says Hreggviður S. Magnússon, CEO of Ceedr. “His deep industry knowledge and international experience will bring exceptional value to our clients and help drive our growth both in Iceland and across the region.”
Ceedr is the digital arm of TBWA\Nordic and specializes in data-driven sales and marketing strategies across the Nordics and Europe. The agency is also a certified HubSpot partner, providing full-service implementation and web design solutions within the HubSpot ecosystem.
“I’m thrilled to be joining Ceedr at such a dynamic time,” says Jón Haukur Baldvinsson. “The agency has a solid foundation, a diverse and talented team, and is experiencing steady growth. I’m excited to contribute to that journey.”
Ceedr currently employs nearly 30 professionals and serves a portfolio of around 100 companies across various sectors.
Media Contact:
Hreggviður S. Magnússon
Managing Director
Ceedr
+354 855 5546
Hreggviður S. Magnússon
CEO
Ceedr
+354 855 5546
www.ceedr.com
Ceedr er hinn stafræni armur Pipar\TBWA sem sérhæfir sig í notkun stafrænna leiða í sölu- og markaðssetningu fyrir fyrirtæki þvert yfir Norðurlöndin og í Evrópu. Einnig er Ceedr vottaður þjónustuaðili Hubspot og aðstoðar fyrirtæki við uppsetningu og innleiðingu á Hubspot og hannar jafnframt vefsíður inn í það kerfi. Ceedr starfar náið með Google, Meta, TikTok og öðrum platformum.
Tags: