6 mánaða uppgjör Össurar hf.
Ársfjórðungurinn var hinn söluhæsti frá upphafi og söluaukning milli ára jafngildir 26% innri vexti á öðrum ársfjórðungi.
Rekstrarhagnaður 2. ársfjórðungs jókst um 53% frá sama fjórðungi í fyrra.
Hagnaður á hlut (EPS) jókst um 31% og var 2,7 cent á hlut.
Sala 2. ársfjórðungs var 21,2 milljónir Bandaríkjadala sem er í samræmi við rekstraráætlun.
Rekstrarhagnaður var tæplega 3 milljónir dala sem er 460 þúsund dölum undir lægri mörkum rekstraráætlunar.
Hagnaður 2. ársfjórðungs var tæplega 2,6 milljónir dala sem er aðeins yfir lægri mörkum áætlunar.
Árshlutauppgjör annars fjórðungs 2002 fyrir félagssamstæðu Össurar hf. var samþykkt á stjórnarfundi 24. júlí. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins og áritaður án athugasemda.
Samstæða Össurar hf. samanstendur í meginatriðum af Össuri hf. á Íslandi, samstæðu Össur Holdings Inc. í USA, samstæðu Össur Holding AB í Svíþjóð og Össur Europe B.V. í Hollandi.
Helstu niðurstöður
Rekstrarreikningur
2. ársfjórðungs 2002 (þús. USD) 2.ársfj.
2002 % af
sölu 2.ársfj.
2001 % af
sölu Breyting
Sala 21.223 100,0% 16.822 100,0% +26,2%
Kostnaðarverð seldra vara -8.595 40,5% -7.149 42,5% +20,2%
Framlegð 12.628 59,5% 9.673 57,5% +30,5%
Aðrar rekstrartekjur 107 0,5% 462 2,7% -76,8%
Sölu- og markaðskostnaður -4.891 -23,0% -3.144 -18,7% +55,6%
Þróunarkostnaður -1.557 -7,3% -1.600 -9,5% -2,7%
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður -3.298 -15,5% -3.442 -20,4% -4,2%
Rekstrarhagnaður 2.989 14,1% 1.949 11,6% +53,4%
Fjármunatekjur/(fjármagnsgjöld) 339 1,6% 213 1,3% +59,2%
Hlutdeildartekjur -18 -0,1% 23 0,1% -178,3%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 3.310 15,6% 2.185 13,0% +51,5%
Tekjuskattur -720 -3,4% 522 3,1% +237,9%
Hagnaður tímabilsins 2.590 12,2% 2.707 16,1% -4,3%
EBITDA 3.604 17,0% 2.478 14,7% +45,4%
Rekstrarreikningur
Jan - Júní 2002 og Jan - Júní 2001 (þús. USD) Jan- Júní
2002 % af
sölu Jan-Júní 2001 % af
sölu Breyting
Sala 39.816 100,0% 33.147 100,0% +20,1%
Kostnaðarverð seldra vara -16.089 40,4% -13.436 40,5% +19,7%
Framlegð 23.727 59,6% 19.711 59,5% +20,4%
Aðrar rekstrartekjur 329 0,8% 611 1,8% -46,2%
Sölu- og markaðskostnaður -9.089 -22,8% -6.479 -19,5% +40,3%
Þróunarkostnaður -3.575 -9,0% -2.759 -8,3% +29,6%
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður -6.860 -17,2% -7.447 -22,5% -7,9%
Rekstrarhagnaður 4.532 11,4% 3.637 11,0% +24,6%
Fjármunatekjur/(fjármagnsgjöld) 15 0,0% -148 -0,4% +110,1%
Hlutdeildartekjur 38 0,0% 33 0,0% +1,2%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 4.585 11,5% 3.522 10,6% +30,2%
Tekjuskattur -965 -2,4% -161 -0,5% +499,4%
Hagnaður tímabilsins 3.620 9,1% 3.361 10,1% +7,7%
EBITDA 5.732 14,4% 4.695 14,2% +22,1%
Efnahagsreikningur (þús. USD) 30.6. 31.12. Breyting
2002 2001
Fastafjármunir 32.644 30.948 +5,5%
Veltufjármunir 34.555 27.253 +26,8%
Eignir samtals 67.199 58.201 +15,5%
Eigið fé 33.559 30.547 +9,9%
Langtímaskuldir 16.338 12.931 +26,3%
Skammtímaskuldir 17.302 14.723 +17,5%
Eigið fé og skuldir samtals 67.199 58.201 +15,5%
Sjóðstreymi
Janúar til júní 2002 (þús. USD) 1.1-30.6
2002 1.130.6
2001
Veltufé frá rekstri 5.547 4.386
Handbært fé frá rekstri 997 4.095
Fjárfestingarhreyfingar -2.187 -2.390
Fjármögnunarhreyfingar 1.363 -3.098
Hækkun / (lækkun) handbærs fjár 173 -1.393
Lykiltölur 1.1-30.6
2002 1.130.6
2001
Hagnaður á hlut (cent) 2,71 2,07
V/H hlutfall 23,7 21,7
Arðsemi eigin fjár 29,0% 25,8%
Veltufjárhlutfall 2,0 1,7
Eiginfjárhlutfall 49,9% 50,1%
Markaðsvirði hlutafjár (milljónir USD) 211 148
Samanburður við rekstraráætlun
Rekstrarreikningur
2. ársfjórðungs 2002 (þús. USD) 2.ársfj.
2002 % af
sölu 2.ársfj.
áætlun % af
sölu Frávik
Sala 21.223 100,0% 21.359 100,0% -136
Kostnaðarverð seldra vara -8.595 40,5% -7.886 36,9% -709
Framlegð 12.628 59,5% 13.473 63,1% -845
Aðrar rekstrartekjur 107 0,5% 43 0,2% 64
Sölu- og markaðskostnaður -4.891 -23,0% -4.828 -22,6% -63
Þróunarkostnaður -1.557 -7,3% -1.874 -8,8% 317
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður -3.298 -15,5% -3.181 -14,9% -117
Rekstrarhagnaður 2.989 14,1% 3.633 17,0% -644
Fjármunatekjur/(fjármagnsgjöld) 339 1,6% -245 -1,1% 584
Hlutdeildartekjur -18 -0,1% 14 0,0% -32
Hagnaður fyrir tekjuskatt 3.310 15,6% 3.402 15,9% -92
Tekjuskattur -720 -3,4% -637 -3,0% -83
Hagnaður tímabilsins 2.590 12,2% 2.765 12,9% -175
EBITDA 3.604 17.0% 4.233 19,8% -629
Rekstur annars ársfjórðungs
Það sem einkennir reksturinn á öðrum ársfjórðungi 2002 er mikill innri vöxtur. Fjórðungurinn er hinn tekjuhæsti hjá félaginu frá upphafi og jókst sala um rúmlega 26% frá sama fjórðungi í fyrra. Sá ársfjórðungur sem áður var söluhæstur var fyrsti fjórðungur þessa árs. Í heild vaxa sölutekjur um rúmlega 20% fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tímabil 2001. Öll aukningin kemur í gegnum innri vöxt þar sem engin fyrirtæki hafa verið keypt á tímabilinu.
Sala í Norður Ameríku, sem er stærsti markaður félagsins, var áfram vel yfir áætlun. Sala í gegnum Össur Europe B.V. var á áætlun eins og á fyrsta ársfjórðungi. Sala Össur Nordic A.B. var 16% yfir áætlun á öðrum fjórðungi en var 5% undir á fyrsta fjórðungi. Sala á öðrum mörkuðum var áfram þung og var tæplega 32% undir áætlun á öðrum fjórðungi. Í heild var sala á öðrum ársfjórðungi og á fyrstu sex mánuðum ársins í samræmi við miðgildi rekstraráætlunar og eru frávik innan við 1%. Nánar skiptist ytri sala samstæðunnar þannig eftir markaðssvæðum:
Þús. USD 2. ársfj. 2002 % Áætlun Frávik
Össur North America, Inc. 12.326 58% 12.078 +248
Össur Europe, B.V. 4.237 20% 4.150 +87
Össur Nordic, A.B. 2.715 13% 2.336 +379
Aðrir markaðir 1.945 9% 2.795 -850
Samtals 21.223 100% 21.359 -136
Kostnaðarverð seldra vara sem hlutfall af sölu var talsvert hærra á öðrum ársfjórðungi en rekstraráætlun gerði ráð fyrir og er frávikið 3,6%. Hlutfallið er hins vegar 2% hagstæðara en á öðrum ársfjórðungi fyrra árs. Nokkrar sveiflur hafa ávallt verið á þessu hlutfalli í rekstri fyrirtækisins. Flutningur og endurskipulagning á framleiðslueiningu í Bandaríkjunum frá Dayton, Ohio, til Albion, Michigan, hefur aukið frávik á þessu ári.
Sölu- og markaðskostnaður er á áætlun á öðrum fjórðungi en var verulega undir áætlun á fyrsta fjórðungi. Í samanburði við fyrra ár hefur hlutfall sölu- og markaðskostnaðar sem hlutfall af sölu verið aukið um liðlega 3% fyrstu sex mánuði ársins miðað við fyrra ár í samræmi við stefnu fyrirtækisins.
Rannsóknar- og þróunarkostnaður var 7,3% af sölu á öðrum ársfjórðungi sem var talsvert undir áætlun. Eins og fram hefur komið var nokkuð af verkefnum flutt fram á fyrsta ársfjórðung og skýrði sú tilhögun hátt hlutfall rannsóknar- og þróunarkostnaðar á þeim fjórðungi. Í heild er hlutfall rannsóknar- og þróunarkostnaðar af sölu tæp 9% á fyrri hluta ársins. Kostnaðurinn er liðlega 3% undir áætlun.
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður var aðeins yfir áætlun á öðrum fjórðungi og í heild var þessi kostnaður um 3% yfir áætlun á fyrri hluta ársins. Hlutfall skrifstofu- og stjórnunarkostnaðar á fyrri hluta ársins var rúm 17% og lækkar úr 22% frá fyrra ári.
Vaxtaliðir voru félaginu hagstæðari en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna gengishagnaðar sem stafar af styrkingu Evru gagnvart Bandaríkadal.
Við samanburð á fyrri hluta áranna 2002 og 2001 þarf að hafa í huga að verðbólgureikningsskil voru lögð af í upphafi ársins 2002. Hagnaður tímabilsins 2001 hefði verið 600 þúsund dölum lægri ef sömu reikningsskilaaðferðum hefði verið beitt þá eins og gert er árið 2002.
Uppbygging nýrrar framleiðslulínu á Íslandi til að framleiða gervifætur úr koltrefjum gekk vel og hófst framleiðsla 1. júlí. Tímasetningar stóðust og heildarfjárfesting í línunni var talsvert undir áætlun.
Á öðrum ársfjórðungi var gerð alþjóðleg vinnustaðagreining á öllum starfstöðvum Össurar. Könnunina annaðist IMG Gallup. Niðurstöðurnar eru mjög jákvæðar og staðfesta að vel hefur gengið að sameina starfsmenn mismunandi fyrirtækja undir merkjum Össurar. Fram kemur að styrkleikar félagsins í starfsmannamálum eru talsverðir umfram það sem gerist hjá viðmiðunarfyrirtækjum.
Á sama tíma var einnig framkvæmt svonefnt 360° mat á framkvæmdastjórn félagsins. Niðurstaða þeirrar greiningar er jákvæð en viðmiðunarhópurinn var stjórnendur breskra fyrirtækja.
Markaðssetning á nýjum vörum gekk samkvæmt áætlun á öðrum ársfjórðungi. Í byrjun maí tók fyrirtækið þátt vörusýningunni Orthopädie Reha Technik í Leipzig, í Þýskalandi, sem er stærsta vörusýning í Evrópu á sviði stoðtækja. Á sýningunni voru kynntar 6 nýjar vörur, þar á meðan nýtt hné, Mauch XG sem er sérstaklega hannað fyrir mikið álag og notendur sem eru mjög virkir í daglegu lífi og jafnvel íþróttum. Hönnunin á Mauch XG er gott dæmi um hvernig tekist hefur að samnýta þá þekkingu sem var fyrir hendi hjá einstökum fyrirtækjum sem nú mynda Össur. Í nýju útgáfunni af Mauch XG er umgjörðin utan um hnéð hönnuð úr samskonar koltrefjum og notaðar eru í Flex-Foot ökklunum, í stað áls, en koltrefjar gera hnéð bæði léttara og sterkara.
Opinn fundur með stjórnendum
Í fyrramálið gefst fjárfestum og öðrum, sem áhuga hafa á rekstri félagsins, kostur á að koma á opinn fund með stjórnendum félagsins. Á fundinum mun Jón Sigurðsson, forstjóri, fara yfir niðurstöður ársfjórðungsins og ræða við fjárfesta ásamt Hjörleifi Pálssyni, fjármálastjóra.
Fundurinn verður á morgun, föstudaginn 26. júlí, og hefst kl. 9:00 á skrifstofu Össurar hf. á Grjóthálsi 5 í Reykjavík.