Hildur Magnúsdóttir viðskiptastjóri hjá DecideAct á Íslandi
Undanfarin ár hefur hugbúnaðarfyrirtækið DecideAct, sem er í eigu danskra og íslenskra aðila, þróað og markaðssett hugbúnað sem er sérhannaður til stjórnunar og eftirfylgni á framkvæmd stefnu.Vegna aukinna umsvifa hefur DecideAct á Íslandi sett aukna áherslu á að styrkja viðskiptasamband og veita viðskiptavinum aukinn stuðning við stefnuframkvæmd og hefur ráðið Hildi Magnúsdóttur M.Sc. í stjórnun og stefnumótun sem viðskiptastjóra félagsins á Íslandi og hefur hún þegar hafið störf. Hildur er 36 ára, með viðskiptafræðigráðu frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í stjórnun og