Össur kaupir Gibaud Group í Frakklandi
Ossur hf. (ICEX: OSSR), hefur keypt franska fyrirtækið Gibaud Group fyrir um 132 milljónir Bandaríkjadala (101 milljón evrur). Gibaud Group er forystufyrirtæki í Frakklandi á sviði þróunar og framleiðslu á stuðningstækjum með sérstakri áherslu á spelkur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferðir (phlebology). Össur tekur við rekstri Gibaud Group frá og með deginum í dag.Kaupin á Gibaud Group eru önnur stærstu fyrirtækjakaup Össurar og falla vel að þeirri stefnu félagsins að víkka út starfsemina á sviði stuðningstækja. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar sagði kaupin mikilvægan áfanga í