Össur hf. kaupir tvö sænsk stoðtækjafyrirtæki.
Össur hf. hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á öllum hlutabréfum tveggja sænskra fyrirtækja, Pi Medical AB og Karlsson & Bergström AB. Sameiginleg velta þessara tveggja félaga er áætluð 668 milljónir íslenskra króna og hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 70 milljónir árið 2000, að frádregnum 5 milljóna króna kostnaði sem fellur til hjá sænsku fyrirtækjunum vegna sameiningarinnar. Ekki er gert ráð fyrir að samlegðaráhrifa gæti fyrr en á næsta ári. Össur hf. greiðir fyrir hlutabréf fyrirtækjanna með 6,9 milljón hlutum í Össuri hf. Miðað við það gengi sem notað er í samningnum, eru