Össur - uppgjör annars ársfjórðungs 2011
METSALA Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGISala -Söluvöxtur á öðrum ársfjórðungi var 17% mælt í Bandaríkjadölum, og ífyrsta skipti sem salan fer yfir 100 milljónir dala í einum fjórðungi. Salanjókst um 10% mælt í staðbundinni mynt og skila öll landsvæði og vörumarkaðiraukinni sölu. Heildarsalan nam 105 milljónum Bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungisamanborið við 90 milljónir dala á öðrum ársfjórðungi 2010. Góður árangur í söluá spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum heldur áfram, en sala á þessum vörumvar hæg í Evrópu. Söluvöxtur í spelkum og stuðningsvörum var 16%, mælt ístaðbundinni mynt.