9 mánaða uppgjör Össurar hf.
Sala fyrstu níu mánuði ársins er 4.948 milljónir króna.Hagnaður fyrstu níu mánuði ársins er 559 mkr. EBIDTA fyrstu níu mánuði ársins er 857 mkr. Áætlaður hagnaður ársins er 810 mkr. Reikningsskil verða í USD frá 1. janúar 2002. Árshlutareikningur félagssamstæðu Össurar hf. 30. september var samþykktur á stjórnarfundi 26. október. Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og verið hefur á árinu 2001 og er áritaður fyrirvaralausri könnunaráritun af endurskoðendum félagsins. Samstæða Össurar hf. samanstendur af Össuri hf. á Íslandi, samstæðu Össur Holdings Inc. í