Breytt rekstraráætlun Össurar hf. fyrir árið 2000
Flex-Foot, Inc. verður gert upp í samstæðureikningi Össurar hf. frá og með 1. apríl árið 2000. Því hefur orðið breyting á áætlunum félagsins eins og þær voru kynntar við birtingu uppgjörs og í fyrri útboðs- og skráningarlýsingu.<br><br>Gert er ráð fyrir að rekstrartekjur félagsins verði 3.410 milljónir króna árið 2000 og hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði 690 milljónir króna. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er sú tala sem stjórn og stjórnendur Össurar hf. líta helst til við mat á árangri fyrirtækisins og í áætlanagerð þess, þar sem sú tala gefur til kynna fjármunamyndunina í